„Hér er útbreiddur faðmur“
Guðrún segir Ingvar hafa látið til sín taka í stjórnmálum eftir að hann kom á þing árið 2024 og margt af því sem hann standi fyrir falli vel að sjálfstæðisstefnunni. Samsett mynd/mbl.is/Eggert Jóhannesson/Karítas
„Við auðvitað bjóðum Ingvar Þóroddsson hjartanlega velkominn í þingflokk Sjálfstæðisflokksins hér á Alþingi,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins.
Ingvar Þóroddsson þingmaður tilkynnti í dag að hann hefði ákveðið að segja skilið við þingflokk Viðreisnar og ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Hann segir stefnu ríkisstjórnarinnar ekki lengur samræmast sannfæringu sinni, hann styðji ekki lengur ríkisstjórnina og gangi því til liðs við stjórnarandstöðu.
Ingvar er annar þingmaðurinn sem gengur úr röðum þingflokksins á skömmum tíma en Jón Gnarr sagði skilið við þingflokk Viðreisnar í síðasta mánuði.
Hlakkar til að vinna með Ingvari
Í samtali við mbl.is segir Guðrún að Ingvar hafi látið til sín taka í stjórnmálum eftir að hann kom á þing árið 2024 og margt af því sem hann standi fyrir falli vel að sjálfstæðisstefnunni.
„Þannig að við hlökkum nú bara til að vinna með honum,“ segir hún.
„Það sem mér finnst skipta öllu máli er að hér er ungur og öflugur þingmaður að velja að ganga í Sjálfstæðisflokkinn vegna þeirra gilda sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir og ég vil minna á það að á landsfundi á síðasta ári þegar ég var kjörinn formaður flokksins talaði ég fyrir því að ég vildi stækka flokkinn og ég vildi bjóða fólk velkomið heim sem hafði farið frá Sjálfstæðisflokknum.
Þetta rímar við þau orð mín og ég meinti það sem ég var að segja þá þannig að hér er útbreiddur faðmur fyrir fólk sem vill koma, eins og ég segi, og vinna að eflingu sjálfstæðisstefnunnar og þeirra frelsishugsjóna sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗