Síldarvertíðinni er lokið hjá SVN

Beitir NK kemur með síldarfarm til Neskaupstaðar.

Beitir NK kemur með síldarfarm til Neskaupstaðar. Ljósmynd/SVN/Guðlaugur Björn Birgisson

Beitir NK kom til Neskaupstaðar á fimmtudagsmorgun með síðasta farm síldarvertíðarinnar hjá Síldarvinnslunni (SVN).

Fram kemur á vef SVN að aflinn hafi verið tæp 1.500 tonn.

„Lokið var við að landa úr Beiti um hádegi í gær en síldin var öll flökuð. Að vinnslu lokinni hófust allsherjarþrif á fiskiðjuverinu,“ segir þar.

Lokatúrinn gekk ágætlega

Rætt er við Tómas Kárason, skipstjóra á Beiti, um lokatúrinn og ganginn á vertíðinni.

„Þessi lokatúr gekk ágætlega. Veiðin var mjög góð til að byrja með en síðan hægðist á henni og það þurfti töluvert að leita,“ segir hann.

Tómas segir veiði hafa hafist á Flugbrautinni suðvestur af Snæfellsnesi en túrinn svo endað úti í Jökuldýpi og Faxadýpi.

„Síldin sem fékkst var ágæt eða dæmigerð íslensk sumargotssíld. Þessi vertíð hefur verið hin ágætasta,“ bætir hann við.

Lengst af hafi verið veitt fyrir austan land en endað vestur af landinu.

Loðnan næst á dagskrá

„Veður á vertíðinni var tiltölulega hagstætt og almennt gengu veiðar vel. Þó þurfti stundum að leita töluvert að síldinni – það var ferð á henni og hún birtist oft og hvarf síðan.“

Næst á dagskrá hjá uppsjávarveiðiskipunum segir Tómas að sé loðnuvertíð.

„Og spurning hvort verður farið að kanna stöðuna á loðnunni fyrir áramót. Við sjáum til með það,” segir hann.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅