Saklaust partí fyrir 13 ára drengi endaði með ósköpum
Hjón í Virginíu í Bandaríkjunum ætluðu að halda litla og saklausa samkomu fyrir 13 ára syni sína og nokkra skólafélaga þeirra. Kvöldið tók hins vegar óvænta stefnu þegar boðið fór á flug á Snapchat og fjöldi unglinga streymdi að heimili fjölskyldunnar.
Áður en yfir lauk hafði lögregla verið kölluð á vettvang og foreldrarnir voru komnir í veruleg vandræði.
Hjónin Lisa Vaughan, 45 ára, og Aubrey Vaughan, 55 ára, höfðu leyft sonum sínum að bjóða 10 til 20 skólafélögum í heimsókn á heimili sitt í McLean í Virginíu þann 6. nóvember. Hugmyndin var að bjóða unglingunum upp á öruggan samkomustað undir eftirliti fullorðinna.
Boðið dreifðist hins vegar á Snapchat og barst meðal annars til eldri unglinga í framhaldsskóla í nágrenninu. Áður en hjónin vissu af var fjöldi óboðinna gesta mættur á svæðið.
Samkvæmt Fox News bárust lögreglu fjölmargar tilkynningar um að ástandið væri farið úr böndunum. Þeir sem hringdu á neyðarlínuna áætluðu að á bilinu 100 til 300 unglingar væru samankomnir við húsið. Þegar lögreglumenn mættu á vettvang blasti við þeim mikill mannfjöldi og hafði flugeldum meðal annars verið skotið upp.
Lögregla lýsti samkomunni sem drykkjupartíi unglinga en hjónin hafna því að hafa leyft áfengisneyslu. Þau segja sérstaklega hafa verið tekið fram í boðinu að stranglega bannað væri að koma með áfengi og að töskur væru einnig bannaðar.
Aubrey segir þau hjónin hafa verið heima allan tímann en einfaldlega misst stjórn á aðstæðum. Hann hafi áttað sig á því að allt væri að fara úr böndunum um 10 til 15 mínútum áður en lögreglan mætti.
Hjónin hafa nú verið ákærð fyrir brot sem tengjast meðal annars því að stuðla að afbrotahegðun ungmenna og halda úti samkomustað sem veldur ónæði. Þau hafna ásökununum.
Aubrey hefur beðist afsökunar á ónæðinu og lét syni sína ganga á milli nágranna til að biðjast afsökunar eftir að lögreglan leysti samkomuna upp.
Hann segir fjölskylduna ekki ætla að halda fleiri slík partí og að reynslan hafi kennt honum mikilvæga lexíu.
„Lærdómurinn er einfaldlega sá að maður verður að fylgjast með Snapchat,“ sagði hann í samtali við FOX 5.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗