Bjargaði lífi tveggja knattspyrnumanna – Nú sakaður um kynferðisbrot

Jonathan Tobin, læknir sem varð þjóðhetja í Englandi eftir að hafa bjargað lífi tveggja knattspyrnumanna, á nú yfir höfði sér að missa lækningaleyfið vegna alvarlegra ásakana um kynferðisbrot.

Tobin vakti heimsathygli árið 2012 þegar Fabrice Muamba, leikmaður Bolton, fékk hjartastopp í bikarleik gegn Tottenham. Tobin var meðal læknanna sem björguðu lífi hans.

Hann kom einnig að björgun Charlie Wyke, leikmanns Wigan, þegar sá síðarnefndi hné niður vegna hjartavandamála árið 2021.

Nú hefur breska læknaráðið, General Medical Council, sakað Tobin um að hafa átt í kynferðislegu sambandi við berskjaldaðan sjúkling.

Þá er hann einnig sakaður um að hafa falsað upplýsingar í sjúkraskrá viðkomandi og bókað óþarfa læknisheimsóknir til að hitta sjúklinginn.

Samkvæmt The Sun verður málið tekið fyrir hjá aganefnd lækna síðar í þessum mánuði.

Verði ásakanirnar staðfestar gæti Tobin misst réttindin til að starfa sem læknir.

Málið hefur vakið athygli enda var Tobin áður hylltur fyrir hetjulega framgöngu sína á knattspyrnuvellinum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅