Haraldur olli slysinu sem dró besta vin hans til dauða með ofsaakstri - „Við vorum bara krakkar“

Alvarlegt bílslys átti sér stað á Miklubraut í febrúar þegar bifreið hafnaði á stólpa Vegagerðarinnar til móts við hús Hjálpræðishersins. Tveir ungir piltar voru í bílnum. Ökumaðurinn slasaðist töluvert en farþeginn, 17 ára drengur, lét lífið. Þrjú ungmenni létu lífið í bílslysi á Krýsuvíkurvegi í lok ágúst, en þau voru á aldrinum 16-20 ára. Grunur leikur á að bæði slysin megi rekja til hraðaksturs.

Mikið hefur verið rætt um hraðakstur ungmenna vegna slysanna tveggja og hefur umræðan á köflum verið hörð í garð þeirra sem óku bifreiðunum. Þetta þekkir Haraldur Már Haraldsson. Þann 18. febrúar árið 2008 stundaði hann ofsaakstur sem átti eftir að breyta lífi hans til frambúðar er hann hafnaði á vegg á um 90 kílómetra hraða og varð þannig valdur að dauða besta vinar síns, Þorvaldar Kristins Guðmundssonar, sem var farþegi í bílnum.

Haraldur steig fram í gær í tilefni af Alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa. Hann ákvað að deila sögu sinni vegna umræðu um slysin á Miklubraut og Krýsuvíkurvegi, en minningardagurinn í ár var með áherslu á unga ökumenn, en hraðakstur er helsta orsök banaslysa ungs fólks í umferðinni.

„Fimm dögum áður fékk ég bílprófið í fyrsta skipti. Loksins orðinn frjáls maður og langþráður draumur loksins orðinn að veruleika. Sá draumur breyttist hins vegar fljótt í martröð því þann 18. febrúar olli ég bílslysinu sem leiddi besta vin minn til dauða.“

Ræddi Haraldur við RÚV um málið og lýsti því hvernig það hafi aldrei verið ætlunin að lenda í slysi. Haraldur var 18 ára gamall, nýkominn með bílpróf, og eins og svo margir ungir menn upplifðu hann og vinur hans sig ódauðlega.

„Við vorum bara krakkar, skilurðu, við vorum bara strákar og við lifðum hratt. Við vorum aldrei að hugsa um hvað gæti gerst,“ segir Haraldur sem bendir á að það hafi aldrei verið ætlunin að lenda í slysi, en þó svo að um hraðakstur hafi verið að ræða þá sé þetta eftir sem áður slys. Ætla má að Haraldur sé þar að vísa til umræðunnar um banaslysin en sumir telja að ekki sé hægt að tala um slys þegar um ofsaakstur sé að ræða. Þeirra á meðal eru foreldrar Hönnuh Jane Large, 18 ára stúlku frá Írlandi, sem lést í slysinu á Krýsuvíkurvegi. Foreldrarnir telja ekki hægt að tala um að dóttir þeirra, sem var farþegi í bílnum, hafi látið lífið í slysi.

Kallaður morðingi

Haraldur ræddi einnig við Heimildina en þar lýsir hann því hvernig hann og Þorvaldur rákust á félaga sína á rúntinum þennan örlagaríka dag. Félagarnir voru á sportbíl og úr varð skætnigur þar sem þeir tóku fram úr hvor öðrum. Haraldur man ekki eftir því hvað gerðist þegar hann missti stjórn á bílnum en samkvæmt fréttum fór hann í gegnum steinvegg og girðingu áður en hann endaði á húsvegg. Höggið var svo mikið að ekki var búið í húsinu eftir áreksturinn. Haraldur hálsbrotnaði og fékk heilablæðingu. Hann lá á barnaspítala hringsins og var þar á gangi með göngugrind og hálskraga þegar hann sér prest og vissi þá strax hvað það þýddi. Þorvaldur var dáinn. Hann rauk út af spítalanum, berfættur, og endaði hágrátandi í anddyrinu. 

„Mér var alveg sama hvað yrði um mig. Myrkar hugsanir herjuðu á, að þetta væri mér að kenna og ég hefði drepið hann. Ég ætti ekki skilið að vera hér.“

Við tók erfiður tími þar sem Haraldur átti erfitt með að takast á við sorgina. Hann var kallaður morðingi og sagt að það hefði verið betra að Þorvaldur hefði lifað en Haraldur dáið. Haraldur var í lengri tíma sammála. Hann var fullur af sjálfshatri og sektarkennd og reyndi að deyfa sársaukann með vímuefnum. 

„Það þarf svo ótrúlega lítið til þess að allt fari í vaskinn,“ segir Haraldur sem bendir á að ökumenn beri ekki bara ábyrgð á eigin lífi þegar þeir setjast undir stýri heldur lífi allra í umferðinni. Hann hefur fyrirgefið sjálfum sér í dag og blöskrað umræðan um banaslysin tvö þar sem fjögur ungmenni létu lífið. Hann ákvað að segja sögu sína í forvarnarskyni og minnir á mikilvægi þess að sýna samkennd og umburðarlyndi. 

Forseti Íslands og samgönguráðherra ávörpuðu einnig viðstadda á minningarathöfn í Fossvægi í gær. Ráðherra boðaði veigamiklar breytingar á umferðarlögum þar sem ætlunin er að ná betur utan um áhættuhegðun í umferðinni á borð við ofsaakstur, gætukappakstur og slíkt. Halla Tómasdóttir forseti varaði við tískubylgju á samfélagsmiðlum þar sem ungmenni stunda hraðakstur og taka það upp.

„Ég segi við unga fólkið að það er enginn hraði, ekkert læk, enginn fjöldi fylgjenda, ekkert réttlætir að við tökum gáleysislegar ákvarðanir sem geta kostað eitthvert lífið, okkur sjálf eða aðra.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅