Ef við töpum verður allt vitlaust
„Mikilvægi leiksins fyrir mig felst fyrst og fremst í því hvort við erum að stíga skref aftur á bak eða halda áfram þessari vegferð,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, á blaðamannafundi í gær.
Ísland mætir Lúxemborg á Laugardalsvelli í Þjóðadeildinni annað kvöld og getur með sigri tryggt sér sæti í B-deild.
„Ef við náum ekki okkar markmiðum á morgun vitum við hvað bíður okkar. Það er óneitanlega skref aftur á bak og þá er kannski erfitt að fá traust og tiltrú aftur. Við þurfum því að gefa okkur alla í verkefnið.“
Arnar segir stöðuna í C-deildinni að sumu leyti vanþakkláta.
„Ef við vinnum segja allir að það skipti engu máli, við ættum að gera það auðveldlega. Ef við töpum verður vitlaust. Sem betur fer eru allir strákarnir miklir fagmenn, gera sér grein fyrir stöðunni og eru vel einbeittir á að loka þessum glugga og árinu eins vel og mögulegt er.“
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗