Þrír unglingar grunaðir um undirbúning hryðjuverka

Handtökurnar koma í kjölfar mannskæðrar skotárásar í Kraká, næststærstu borg Póllands. Pólverjar eru enn slegnir yfir árásinni. AFP

Pólskar öryggisstofnanir greindu frá því í dag að þrír unglingar hefðu verið handteknir, grunaðir um að undirbúa hryðjuverkaárásir. Tveir þeirra eru 17 ára og einn 16 ára.

Handtökurnar koma í kjölfar mannskæðrar skotárásar í Kraká, næststærstu borg Póllands. Pólverjar eru enn slegnir yfir árásinni 7. nóvember, þegar 24 ára pólskur maður myrti foreldra sína og systur áður en hann varð sex manns til viðbótar að bana af handahófi.

Að sögn yfirvalda kann árásarmaðurinn að hafa sótt innblástur til norska nýnasistans Anders Behring Breivik.

Skiptust á upplýsingum um sprengjugerð

Tomasz Siemoniak, ráðherra sem fer með málefni öryggisstofnana, sagði á samfélagsmiðlinum X að unglingarnir þrír hefðu „ekki aðeins haldið á lofti hugmyndafræði nasisma og fasisma, heldur þegar hafist handa við að undirbúa verknað sem félli undir hryðjuverk“.

Hann sagði 17 ára unglingana tvo hafa skipst á upplýsingum á netinu um hvernig búa mætti til sprengiefni og skotvopn.

Á heimili annars þeirra fundust efni sem hægt væri að nota til sprengiefnagerðar.

Hrópuðu að þeir væru með sprengju

Í öðru máli, sem endurspeglar aukna árvekni eftir skotárásina í Kraká, voru tveir Úkraínumenn, 18 og 19 ára, handteknir síðastliðinn föstudag og sendir aftur til heimalands síns.

Þeir höfðu hrópað af svölum að þeir væru hryðjuverkamenn og væru með sprengju.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅