Birtir myndir af sér berum að ofan - Í toppformi eftir djammið

Jack Grealish, leikmaður Everton, leggur nú hart að sér til að vinna sér aftur sæti í liðinu eftir að hafa verið settur út í kuldann vegna drykkjuláta.

Grealish, sem er 31 árs og á láni frá Manchester City, var tekinn úr leikmannahópnum af David Moyes eftir að The Sun greindi frá því að hann hefði eytt tveimur kvöldum í röð á krám og karókíbar.

Englendingurinn bað stuðningsmenn og félagið afsökunar á hegðun sinni.

„Ég elska að spila fyrir þetta félag og get ekki beðið eftir að klæðast Everton-treyjunni aftur,“ sagði Grealish.

Nú hafa birst myndir af honum á æfingu með einkaþjálfaranum Chris Bowman þar sem hann æfir ber að ofan og tekur meðal annars skotæfingar.

Grealish hefur ekki leikið með Everton síðan í 2-0 tapi gegn Chelsea þann 17. október.

Hann hefur enn ekki skorað eða lagt upp mark í fimm deildarleikjum á tímabilinu.

Næsti leikur Everton er gegn Brentford á mánudaginn og vonast Grealish til að komast aftur í náðina hjá Moyes.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅