Viðreisn missir spón úr aski sínum

Viðreisn er orðinn 3-4. stærsti flokkurinn á þingi.

Viðreisn er orðinn 3-4. stærsti flokkurinn á þingi. Samsett mynd/mbl.is/Hallur/mbl.is/Eyþórþ.

Þingflokkur Viðreisnar er nú jafnstór þingflokki Flokks fólksins. Flokkarnir deila því þriðja og fjórða sæti að stærð á Alþingi eftir að Ingvar Þóroddsson ákvað að yfirgefa þingflokk Viðreisnar og ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn.

Sjálfstæðisflokkurinn stendur nú jafnfætis Samfylkingunni hvað þingmannafjölda varðar, en hvor flokkur hefur 15 þingmenn.

Þingstyrkur stjórnarflokkanna hefur minnkað, en Ingvar er þriðji þingmaðurinn sem yfirgefur þingflokk stjórnarflokks frá því ríkisstjórnin tók við völdum árið 2024. Áður höfðu Guðmundur Ingi Kristinsson yfirgefið þingflokk Flokks fólksins og Jón Gnarr þingflokk Viðreisnar. Þeir sitja nú báðir utan þingflokka en hafa áfram lýst stuðningi við ríkisstjórnina, Jón við fjárlög og tiltekin stefnumál hennar.

Stjórnarflokkar Samfylkingar, Flokks fólksins og Viðreisnar hafa nú samtals 33 þingmenn, en 32 þarf til meirihluta á Alþingi. Við myndun ríkisstjórnarinnar höfðu stjórnarflokkarnir 36 þingmenn á móti 27 þingmönnum stjórnarandstöðunnar. Nú hafa stjórnarandstöðuflokkarnir 28 þingmenn og tveir þingmenn sitja utan þingflokka.

Árlegt framlag lækkar um 2,7 milljónir

Brotthvarf Jóns Gnarr og Ingvars Þóroddssonar úr þingflokki Viðreisnar lækkar samanlagt rekstrarframlag þingflokksins um tæpar 2,7 milljónir króna á ársgrundvelli, eða um 222 þúsund krónur á mánuði, miðað við óbreytta fjárhæð framlagseiningar.

Almennt ríkisframlag til Viðreisnar sem stjórnmálaflokks breytist hins vegar ekki vegna úrsagnanna, enda byggist það á úrslitum síðustu alþingiskosninga.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅