Lukaku kallar það gott

Romelu Lukaku er hættur með landsliðinu.

Romelu Lukaku er hættur með landsliðinu. AFP/John Thys

Romelu Lukaku hefur ákveðið að hætta að leika með belgíska landsliðinu í knattspyrnu eftir sextán ára landsliðsferil. Framherjinn kveður sem langmarkahæsti leikmaður í sögu liðsins með 94 mörk í 135 landsleikjum.

Lukaku, sem er 33 ára og leikur með Fenerbahçe í Tyrklandi, var á varamannabekknum allan tímann þegar Belgía vann Ítalíu í Þjóðadeildinni í gær.

Hann lék á fjórum heimsmeistaramótum og þremur Evrópumótum með Belgíu. Besti árangur liðsins á þeim tíma var þriðja sætið á HM í Rússlandi árið 2018.

Markamet Lukakus er langt frá því að vera í hættu. Kevin De Bruyne er næstur á lista Belga með 41 landsliðsmark, en Lukaku skoraði því meira en tvöfalt fleiri mörk.

Íslenska landsliðið fékk einnig að finna fyrir markaskorun hans því hann skoraði fimm mörk í þremur leikjum gegn Íslandi.

Aðeins fjórir karlar hafa skorað fleiri landsliðsmörk en Lukaku. Cristiano Ronaldo er efstur með 146 mörk, Lionel Messi hefur skorað 126, Ali Daei 108 og Sunil Chhetri 95.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅