Fordæmir „viðbjóðsleg“ skilaboð Brands úr fangelsi

Ed Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, sagði ráðherrann skilaboðin „viðbjóðsleg“ og Brand enga iðrun sýna eftir að hafa verið dæmdur í fangelsi fyrir nauðgun og kynferðisbrot. AFP

Ed Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, fordæmdi í dag skilaboð sem leikarinn og grínistinn Russell Brand sendi frá sér úr fangelsi og voru birt á samfélagsmiðlum.

Sagði ráðherrann skilaboðin „viðbjóðsleg“ og Brand enga iðrun sýna eftir að hafa verið dæmdur í fangelsi fyrir nauðgun og kynferðisbrot.

Laura Gallacher, eiginkona Brands, las upp skilaboðin í myndskeiði sem birt var á YouTube-rás þeirra. Þar hélt Brand fram sakleysi sínu.

Brand, sem er 51 árs, var í síðustu viku dæmdur í tíu og hálfs árs fangelsi fyrir eina nauðgun og þrjú önnur kynferðisbrot. Hann varð þekktur sem grínisti og leikari en hefur á síðari árum látið til sín taka á netinu sem íhaldssamur áhrifavaldur með áherslu á trúmál.

Í skilaboðunum greindi Brand jafnframt frá því að hann hefði verið fluttur í fangelsi þar sem öryggisgæsla væri vægari og væri þar vistaður með öðrum kynferðisbrotamönnum.

„Engin iðrun, engin samúð með brotaþolunum, bara viðbjóðsleg ummæli,“ sagði Miliband við Sky News.

Brand var í síðustu viku dæmdur í tíu og hálfs árs fangelsi fyrir eina nauðgun og þrjú önnur kynferðisbrot. AFP

Vill breyta aldursmörkum

Skilaboðin birtast á sama tíma og kona, sem sakar Brand um kynferðisbrot, hefur kallað eftir breytingum á lögum um aldursmörk kynferðislegs samþykkis.

Mia Latter, sem var 16 ára þegar hún kynntist Brand, sagði í viðtali við Sunday Times að banna ætti kynferðissambönd fólks yfir 18 ára aldri við 16 og 17 ára ungmenni.

Lágmarksaldur kynferðislegs samþykkis í Bretlandi er nú 16 ár.

Ásakanir Latter, sem er nú 37 ára, komu fram í umfjöllun dagblaðanna The Times og Sunday Times og fréttaskýringaþáttarins Dispatches á Channel 4 árið 2023.

Sú umfjöllun varð undanfari lögreglurannsóknarinnar sem leiddi til þess að Brand var dæmdur í fangelsi. Ásakanir Latter voru þó ekki til umfjöllunar í dómsmálinu.

Lögregla hefur nú til skoðunar nýjar ásakanir að minnsta kosti tveggja annarra kvenna sem segja Brand hafa brotið gegn sér.

Lögregla rannsakar einnig ásakanir um alvarleg kynferðisbrot af hálfu grínistans og barnabókahöfundarins Davids Walliams. AFP

Rannsaka einnig ásakanir á hendur Walliams

Lögregla rannsakar einnig ásakanir um alvarleg kynferðisbrot af hálfu grínistans og barnabókahöfundarins Davids Walliams. Hann er 55 ára og hefur neitað að hafa framið nokkurt brot.

Sjónvarpsfréttastofan ITN og dagblaðið The Guardian fjölluðu í síðustu viku um ásakanir nokkurra kvenna á hendur Walliams vegna meintra brota allt aftur til ársins 2003. Meðal þeirra er ásökun um að hann hafi beitt 15 ára stúlku kynferðisofbeldi.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅