Loftslagsstjóri SÞ: „Tvíeggjað sverð “
Loftslagsstjóri Sameinuðu þjóðanna benti í morgun á „mikla möguleika og mikla hættu“ sem fylgja gervigreind í baráttunni gegn hlýnun jarðar, á sama tíma og Tyrkland, gestgjafi COP31, hleypti af stokkunum átaki sem ætlað er að taka á málinu.
Hið valfrjálsa „Antalya-heit um gervigreind“, sem er nefnt eftir tyrknesku Miðjarðarhafsborginni þar sem viðræður Sameinuðu þjóðanna fara fram, miðar að því að nýta möguleika tækninnar til að finna lausnir í loftslagsmálum og meta vaxandi umhverfisáhættu hennar.
Heitið hefur hingað til hlotið 80 stuðningsyfirlýsingar, meðal annars frá ríkjum og fyrirtækjum, en enn sem komið er eru fá ríki þeirra á meðal.
„Við stöndum á tæknilegum tímamótum sem fela í sér bæði mikla möguleika og mikla hættu. Gervigreind og önnur framsækin tækni eru tvíeggjað sverð,“ sagði Simon Stiell, loftslagsstjóri Sameinuðu þjóðanna, þegar heitinu var hleypt af stokkunum.
„Við getum ekki beðið fólk um að sætta sig við hærri reikninga, meiri mengun sem hitar jörðina og aukinn ójöfnuð í dag gegn loforðum um betri framtíð. Ávinningur gervigreindar verður að vega þyngra en vaxandi kostnaður hennar,“ sagði Stiell.
Gervigreind er notuð á fjölbreyttan hátt, allt frá því að bæta veðurspár til eftirlits með losun frá iðnaði og hámörkunar endurnýjanlegrar orku.
Nota gríðarlegt magn orku og vatns
En gagnaverin sem knýja tæknina nota gríðarlegt magn orku og vatns, sem hefur vakið reiði í samfélögum þar sem orku- og vatnsreikningar hafa rokið upp og valdið áhyggjum af vaxandi kolefnisspori þeirra.
António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti gervigreindarfyrirtæki í júní til að upplýsa um umhverfisáhrif sín og skuldbinda sig til að knýja öll gagnaver með endurnýjanlegri orku fyrir árið 2030.
Samkvæmt rannsókn Sameinuðu þjóðanna notuðu gagnaverin meiri raforku árið 2025 en öll ríki heims nema tíu og gætu verið komin fram úr öllum nema fimm fyrir árið 2030.
Vatnsnotkun þeirra gæti fyrir árið 2030 jafnast á við árlega grunnvatnsþörf allra íbúa Afríku sunnan Sahara, að sögn Stofnunar háskóla Sameinuðu þjóðanna um vatn, umhverfi og heilbrigði.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
