„Við munum taka yfir þennan markað hér“

Rannsóknin hófst eftir að hollenska lögreglan veitti íslenskum starfsbræðrum sínum upplýsingar um fyrirhugaðan fíkniefnainnflutning með húsbíl. mbl.is/Eggert

„Við munum taka yfir þennan markað hér, bróðir, um það er ég viss.“ Þetta skrifaði Kristinn Hólm Runólfsson í samskiptum við hollenskan samverkamann sinn í aðdraganda innflutnings á rúmlega tólf og hálfu kílói af fíkniefnum til Íslands í húsbíl í maí.

Í samskiptunum var rætt um gæði efnanna, afhendingu þeirra og fleiri sendingar.

Skilaboðin eru meðal þeirra gagna sem Héraðsdómur Reykjavíkur studdist við þegar fimm menn voru sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot 5. nóvember. Í dóminum, sem var birtur í dag, er lýst rannsókn lögreglu á Íslandi og í Hollandi, hleruðum samtölum og rafrænum gögnum sem tengdu mennina við innflutninginn.

Eins og mbl.is greindi frá hlutu Kristinn Hólm og Kristinn Már Viðarsson báðir sex ára fangelsisdóm. Kishan Mohabier-Panday var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi en Sandeep Shiva Kamal Singh og Mahesh Odeai í fjögurra ára fangelsi hvor.

Dómurinn taldi gögn málsins eindregið benda til skipulegrar og lagskiptrar brotastarfsemi. Mennirnir hefðu verið hluti af verkskiptri keðju þótt þeir þekktu ekki endilega alla þátttakendur eða hlutverk hvers og eins.

Fylgdust með fundi í Ármúla

Rannsóknin hófst eftir að hollenska lögreglan veitti íslenskum starfsbræðrum sínum upplýsingar um fyrirhugaðan fíkniefnainnflutning með húsbíl. Lögreglan í Hollandi hafði þá fylgst með brotahópi þar í landi.

Þegar menn tengdir rannsókninni komu til Íslands 15. apríl fylgdist lögregla með ferðum þeirra. Tveir þeirra hittu Kristin Hólm og Kristin Má á veitingastað í Ármúla. Mennirnir fjórir fóru síðan í 32 mínútna gönguferð áður en leiðir skildu.

Fyrir dómi sagði Kristinn Hólm að annar Hollendinganna hefði minnst á fíkniefnainnflutning en hann hafnað þátttöku í slíku. Í gönguferðinni hefði verið rætt almennt um Ísland og veðrið. Kristinn Már sagðist ekki hafa áttað sig á að rætt væri um fíkniefni.

Dómurinn taldi þessar skýringar ótrúverðugar. Gögn úr síma hollensks samverkamanns sýndu að fundurinn hafði verið ákveðinn fyrirfram. Hollendingarnir virtust hafa komið gagngert til landsins til að hitta Íslendingana og héldu utan daginn eftir.

Umfangsmikil samskipti fundust í síma hollenska samverkamannsins, sem notaði meðal annars heitið Pornstar á Signal. Ljósmynd/Colourbox

Ræddu gæði og fleiri sendingar

Umfangsmikil samskipti fundust í síma hollenska samverkamannsins, sem notaði meðal annars heitið Pornstar á Signal. Dómurinn taldi sannað að Kristinn Hólm hefði verið viðmælandi hans undir notandanafninu JJ2, en Kristinn Hólm gekkst sjálfur við því fyrir dómi að hafa notað það nafn.

Þegar í mars var rætt um að leigja húsbíl, útvega ökumenn og bóka far með ferju. Hollendingurinn spurðist einnig fyrir um hentugt tjaldstæði á Íslandi. Í síma Kishans fannst skjáskot af samskiptum hans við Hollendinginn með mynd af tjaldstæðinu í Laugardal. Þar voru þremenningarnir síðar handteknir.

Kristinn Hólm lagði áherslu á gæði efnanna. Væru þau ekki úr efstu skúffu tæki lengri tíma að selja þau. Þegar samverkamaðurinn greindi frá því 18. maí að pökkun hæfist daginn eftir svaraði Kristinn Hólm því að þeir myndu taka yfir markaðinn hér.

Síðar var rætt um „hraða“ og „langa“. Dómurinn féllst á það mat lögreglu að Hollendingurinn hefði þar að líkindum átt við amfetamín og kókaín. Magntölur í skilaboðunum fóru nærri því magni sem fannst í húsbílnum.

Þá greindi Hollendingurinn frá því að hann væri þegar að leita að nýjum ökumönnum. Undirbúa ætti fleiri sendingar um leið og greiðsla bærist.

Hollendingarnir þrír komu með bílinn til Seyðisfjarðar með Norrænu 27. maí. Íslensk lögregla fylgdist með þeim frá komunni til landsins þar til þeir voru handteknir í Laugardal tveimur dögum síðar. Myndin er úr safni. Ljósmynd/Colourbox

Texti um að samræma frásögn

Sími sem fannst í ferðatösku inni í skáp á heimili Kristins Hólms var einnig meðal sönnunargagna. Þar fundust ummerki um samskipti við hollenska samverkamanninn.

Í símanum var jafnframt vistaður texti um fundinn í Ármúla. Þar var rætt um að ef þyrfti að samræma frásögnina hefðu menn einfaldlega hitt tvo Hollendinga á veitingastað og bent þeim á Gullfoss, Geysi og veitingastað.

Dómurinn leit meðal annars til þessa texta, fundarins og samskiptanna á Signal þegar hann taldi sannað, gegn neitun Kristins Hólms, að hann hefði tekið þátt í skipulagningu innflutningsins.

Tegundir og magn efna, tímasetningar og önnur atriði í samskiptunum féllu að atvikum málsins. Þá hefði verið rætt um húsbíl, þvert á framburð Kristins Hólms fyrir dómi.

Ljósmynd með sömu merkingu

Við mat á þætti Kristins Más leit dómurinn meðal annars til fundarins í Ármúla, samskipta hans við Kristin Hólm og hleraðra símtala.

Í símtali 20. maí sagðist Kristinn Már vera að fara að taka „einn alvarlegasta snúning“ sem hann hefði tekið í mörg ár. Daginn sem mennirnir voru handteknir ræddi hann um efni sem væru týnd einhvers staðar á Íslandi og að hann biði eftir að ná sambandi við bílstjórann sinn.

Kristinn Már sagði síðar að ummælin um týndu efnin hefðu varðað 50 grömm af amfetamíni sem tengdust smásölu hans. Hann neitaði aðild að húsbílainnflutningnum.

Í síma hans fannst einnig ljósmynd af fíkniefnum með merkingunni 0011. Sömu merkingu var að finna á efnunum í húsbílnum og á ljósmynd í síma hollenska samverkamannsins.

Dómurinn taldi þessi atriði, metin heildstætt, sanna þátt Kristins Más í skipulagningunni. Skýringar hans voru taldar ótrúverðugar og hann hefði verið missaga um fundinn og ummælin um týndu efnin.

Við leit í bílnum fundust rúmlega 10,5 kíló af amfetamíni og tæp tvö kíló af kókaíni undir rúmi aftan til í honum. Styrkleiki amfetamínbasans var 59–65 prósent og kókaínsins 86 prósent. mbl.is/Eggert

Fíkniefnin dulbúin sem rafgeymir

Hollenska lögreglan fylgdist með undirbúningi sendingarinnar. Á myndbandi sást fíkniefnum þjappað í kubba og komið fyrir í ílöngum svörtum kassa. Daginn eftir var kassinn fluttur á tjaldstæði þar sem húsbíllinn var.

Hollendingarnir þrír komu með bílinn til Seyðisfjarðar með Norrænu 27. maí. Íslensk lögregla fylgdist með þeim frá komunni til landsins þar til þeir voru handteknir í Laugardal tveimur dögum síðar.

Við leit í bílnum fundust rúmlega 10,5 kíló af amfetamíni og tæp tvö kíló af kókaíni undir rúmi aftan til í honum. Styrkleiki amfetamínbasans var 59–65 prósent og kókaínsins 86 prósent.

Efnunum hafði verið komið fyrir í álkassa innan í ytra byrði rafgeymis þannig að utan frá virtist um rafgeymi að ræða. Snúrur lágu í kassann og vægur straumur var á þeim. Fíkniefnin voru klædd blýþynnum og þakin olíu.

Trúði ekki skýringum um sumarfrí

Kishan játaði þátt sinn fyrir dómi eftir að hafa áður neitað sök. Hann sagði menn í Hollandi hafa fengið sig til verksins og að hann hefði útvegað Sandeep og Mahesh sem ökumenn þar sem hann hefði sjálfur ekki ökuréttindi.

Báðir ökumennirnir neituðu að hafa vitað af fíkniefnunum og sögðust hafa talið sig vera á leið í frí. Dómurinn mat framburð Kishans hins vegar trúverðugan í meginatriðum, þar á meðal um þátttöku þeirra, enda fengi hann stoð í öðrum gögnum.

Sandeep sagðist hafa greitt sjálfur fyrir ferðina. Dómurinn taldi bankagögn aftur á móti styðja frásögn Kishans um að hann hefði látið Sandeep hafa reiðufé frá samverkamönnum í Hollandi. Sandeep hefði lagt það inn á reikning sinn og millifært áfram vegna undirbúnings ferðarinnar.

Mahesh sagði að grunsemdir hefðu vaknað eftir komuna til Íslands vegna símtala sem Kishan vildi ekki að hinir heyrðu. Hann hefði því farið að leita að flugi heim.

Dómurinn benti á að Mahesh hefði þegar fyrir ferðina velt fyrir sér hvort eitthvað ólöglegt stæði til og vitað af fyrra fíkniefnamisferli Kishans. Þrátt fyrir það hefði hann farið með og haldið ferðinni áfram eftir komuna til landsins.

Mennirnir óku rakleiðis frá Seyðisfirði til Reykjavíkur, fram hjá náttúruperlum og nær án viðkomu nema til að sinna brýnustu nauðsynjum. Taldi dómurinn það draga úr trúverðugleika þess að tilgangurinn hefði aðeins verið að skoða landið og heimsækja náttúrulaugar. mbl.is/Sigurður Bogi

Óku fram hjá náttúruperlum

Ferðatilhögunin vó einnig þungt við mat dómsins. Mennirnir óku rakleiðis frá Seyðisfirði til Reykjavíkur, fram hjá náttúruperlum og nær án viðkomu nema til að sinna brýnustu nauðsynjum. Taldi dómurinn það draga úr trúverðugleika þess að tilgangurinn hefði aðeins verið að skoða landið og heimsækja náttúrulaugar.

Þá vísaði dómurinn til gagna um að þremenningarnir hefðu rætt sín á milli 28. maí að þeir ættu að hitta mann í Reykjavík daginn eftir.

Niðurstaðan var sú að ökumennirnir hefðu að lágmarki mátt gera sér grein fyrir að fíkniefni væru falin í bílnum en látið sér það í léttu rúmi liggja. Taldi dómurinn kröfum um ásetning því fullnægt. Ekki réði úrslitum hvort mennirnir vissu nákvæmlega um tegund eða magn efnanna.

Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til magns og styrkleika fíkniefnanna og þess að brotin voru framin í félagi við aðra. Játning Kishans var metin honum til málsbóta en þáttur hans talinn meiri en þáttur ökumannanna tveggja.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅