Stiven kominn aftur heim
Handknattleiksmaðurinn Stiven Tobar Valencia hefur samið við Val og snýr því aftur til uppeldisfélags síns eftir dvöl hjá Benfica í Portúgal.
Stiven hefur verið án félags frá því í vor og glímt við meiðsli. Samkvæmt tilkynningu Vals hefur hann æft með liðinu síðustu vikur og er nú tilbúinn að hefja keppni á ný.
Valsmenn fá því liðsstyrk í baráttunni um að verja Íslandsmeistaratitilinn. Stiven þekkir vel til á Hlíðarenda þar sem hann varð Íslandsmeistari.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗