Hvítlaukskjúklingur sem ilmar út á hlað

Kjúklingabringurnar eru hjúpaðar parmesanosti og muldum brauðteningum sem verða stökkir við baksturinn. Ljósmynd/Aðsend

Hvítlauksilmurinn tók á móti Alberti Eiríkssyni strax úti á hlaði þegar hann kom í mat til Lindu Baldvinsdóttur. Á borðum var kjúklingaréttur sem hún hefur þróað í gegnum tíðina og Albert deilir á uppskriftasíðu sinni, Albert eldar.

Hér fá kjúklingabringur að liggja í ólífuolíu með ríkulegu magni af hvítlauk áður en þeim er velt upp úr parmesanosti og muldum brauðteningum. Úr verður bragðmikill réttur með stökkum hjúpi, borinn fram með hrísgrjónum og fersku salati.

Hvítlaukskjúklingur með parmesan

Hvítlaukskjúklingur Lindu Baldvinsdóttur er borinn fram með hrísgrjónum og fersku salati með döðlum og kókosflögum. Ljósmynd/Aðsend

Fyrir 4

  • 4 kjúklingabringur
  • 150 g brauðteningar
  • 1 stykki parmesanostur
  • 1 stór hvítlaukur
  • 1 bolli jómfrúarólífuolía
  • salt og pipar eftir smekk

Aðferð

  1. Afhýðið og pressið hvítlaukinn. Blandið honum saman við ólífuolíu, salt og pipar.
  2. Leggið kjúklingabringurnar í blönduna og látið marinerast stutta stund í kæli.
  3. Myljið brauðteningana og rífið parmesanostinn fínt. Blandið saman.
  4. Veltið kjúklingabringunum upp úr brauðmylsnunni og parmesanostinum og leggið í eldfast mót með loki eða leirpotti.
  5. Eldið undir loki í um 45 mínútur.
  6. Takið lokið af og bakið áfram í um 10 mínútur eða þar til hjúpurinn er orðinn ljósbrúnn og kjúklingurinn fulleldaður. Bætið við ólífuolíu ef þurfa þykir.
  7. Berið fram með hrísgrjónum, sojasósu og hvítlauksbrauði. Ferskt salat með konfekttómötum, söxuðum döðlum og kókosflögum fer einnig vel með.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅