Stiven kominn aftur heim

Stiven Tobar Valencia er kominn aftur heim í Val.

Stiven Tobar Valencia er kominn aftur heim í Val. mbl.is/Eyþór

Handknattleiksmaðurinn Stiven Tobar Valencia hefur samið við Val og snýr því aftur til uppeldisfélags síns eftir dvöl hjá Benfica í Portúgal.

Stiven hefur verið án félags frá því í vor og glímt við meiðsli. Samkvæmt tilkynningu Vals hefur hann æft með liðinu síðustu vikur og er nú tilbúinn að hefja keppni á ný.

Valsmenn fá því liðsstyrk í baráttunni um að verja Íslandsmeistaratitilinn. Stiven þekkir vel til á Hlíðarenda þar sem hann varð Íslandsmeistari.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅