Goðsögn kveður sviðið í Laugardalnum í kvöld - Fær hann tækifæri til að jafna metið?

Aron Einar Gunnarsson er að leggja lokahönd á einn merkasta landsliðsferil í sögu íslenskrar knattspyrnu. Miðjumaðurinn, sem er 37 ára, tilkynnti í september að leikir Íslands í Þjóðadeildinni í haust yrði hans síðasta í bláu treyjunni. Komið er að kveðjustund í kvöld þegar Ísland tekur á móti Lúxemborg.

Komi Aron við sögu mun hann jafna landsleikjamet Birkis Bjarnasonar.

Group D Argetnina v Iceland - FIFA World Cup Russia 2018 Aron Gunnarsson (Iceland) with the wife Kris Jonasdottir after the match at Spartak Stadium in Moscow, Russia on June 16, 2018. (Photo by Matteo Ciambelli/NurPhoto via Getty Images)

Aron Einar lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Færeyjum í febrúar 2008, aðeins 18 ára gamall. Fjórum árum síðar tók hann við fyrirliðabandinu og varð einn helsti leiðtogi liðsins á mesta uppgangstímabili í sögu íslenska karlalandsliðsins.

Undir stjórn Lars Lagerbäck og Heimis Hallgrímssonar tryggði Ísland sér sæti á Evrópumótinu í Frakklandi 2016, fyrsta stórmóti karlalandsliðsins. Þar fór liðið alla leið í átta liða úrslit eftir eftirminnilegan 2-1 sigur á Englandi.

Getty Images

Aron Einar var í lykilhlutverki á miðjunni og vakti athygli fyrir baráttu, leiðtogahæfileika og löng innköst.

Tveimur árum síðar leiddi hann Ísland á Heimsmeistaramótið í Rússlandi, þar sem þjóðin tók þátt í fyrsta sinn. Jafnteflið gegn Argentínu í fyrsta leiknum er meðal stórra augnablika ferilsins, þótt liðið kæmist ekki upp úr riðlinum.

Aron Einar hefur skorað fimm mörk fyrir Ísland. Þrjú þeirra komu í einum leik, þegar hann skoraði þrennu í 7-0 sigri á Liechtenstein árið 2023.

Hann lék sinn 112. A-landsleik þegar Ísland vann Búlgaríu 5-0 síðasta föstudag. Komi hann við sögu gegn Lúxemborg á Laugardalsvelli í kvöld jafnar hann landsleikjamet Birkis Bjarnasonar, 113 leiki.

Aron Einar hefur sjálfur lýst því hvernig landsliðsferillinn hafi kostað fórnir. Í september skrifaði hann að hann hefði gefið líf sitt og sál fyrir landið í 18 ár.

Nú stefnir allt í tilfinningaþrungna kveðjustund fyrir einn áhrifamesta leikmann sem Ísland hefur átt.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅