Kristinn Hólm og Kristinn Már fengu sex ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot – Földu efnin í húsbíl

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt fimm karlmenn í fangelsi fyrir stórfelldan fíkniefnainnflutning til landsins frá Hollandi. Tveir Íslendingar, Kristinn Hólm Runólfsson og Kristinn Már Viðarsson, fengu sex ára fangelsisdóm hvor, en þrír hollenskir ríkisborgarar hlutu fjögurra til fjögurra og hálfs árs fangelsi.

Málið snýst um innflutning á rúmum tíu kílóum af amfetamíni og tæplega tveimur kílóum af kókaíni sem flutt voru til landsins með Norrænu í lok maí 2026. Fíkniefnin voru falin í sérútbúnum kassa sem leit út fyrir að vera rafgeymir í húsbíl. Þau voru ætluð til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni.

Sjá einnig: Þaulskipulagt brot Íslendinga og Hollendinga endaði þegar húsbíllinn var stöðvaður í Laugardal

Dómurinn var kveðinn upp 5. nóvember síðastliðinn en var birtur á vefsíðu dómstólanna í dag.  Auk Kristins Hólms og Kristins Más voru Hollendingarnir Kishan Mohabier-Panday, Sandeep Shiva Kamal Singh og Mahesh Odeai sakfelldir.

Hittu Hollendingana á veitingastað í Ármúla

Rannsókn málsins hófst eftir að íslensk lögregluyfirvöld fengu upplýsingar frá hollensku lögreglunni um að verið væri að undirbúa fíkniefnaflutning til Íslands með húsbíl. Hollenska lögreglan hafði um nokkurt skeið fylgst með brotahópi þar í landi og komist á snoðir um áformin.

Íslenska lögreglan hóf eftirlit með Kristni Má og Kristni Hólm eftir að þeir hittu tvo Hollendinga á veitingastað í Ármúla í Reykjavík 15. apríl 2026. Annar þeirra var Patrick Van Jan De Meertse, sem síðar reyndist hafa gegnt lykilhlutverki í undirbúningi sendingarinnar.

Lögreglan fylgdist með ferðum Íslendinganna, hleraði síma þeirra og kom fyrir hlerunarbúnaði í bíl. Gögn úr farsímum og samskiptaforritinu Signal reyndust síðan hafa mikla þýðingu fyrir niðurstöðu málsins.

Í samskiptum Patrick við notanda sem lögreglan taldi vera Kristinn Hólm var meðal annars rætt um að finna ökumann, leigja húsbíl, kaupa ferjumiða og velja tjaldstæði á Íslandi. Í skilaboðum frá 21. og 22. maí var fjallað um að setja um 11 kíló af amfetamíni og tvö kíló af kókaíni í sendinguna. Magn efnanna reyndist mjög nálægt því sem fannst síðar í húsbílnum.

Handteknir á tjaldsvæðinu í Laugardal

Hinn 27. maí komu Kishan, Sandeep og Mahesh til landsins með Norrænu frá Hirtshals í Danmörku. Þeir höfðu leigt húsbíl í Belgíu og óku honum frá Seyðisfirði til Reykjavíkur, þar sem þeir lögðu honum á tjaldsvæðinu í Laugardal. Þeir voru handteknir þar tveimur dögum síðar.

Við leit í bifreiðinni fundust 10,5 kíló af amfetamíni og tæplega tvö kíló af kókaíni. Efnin voru falin í álkassa inni í ytra byrði falsks rafgeymis undir rúmi í bílnum. Búið hafði verið að koma rafmagnssnúrum fyrir í kassanum og setja lítinn rafgeymi í bifreiðina í stað þess stærri sem hafði verið fjarlægður. Fíkniefnin höfðu jafnframt verið vafin blýþynnum og þakin olíu.

Húsleitir hjá Kristni

Við rannsóknina kom einnig í ljós að Kristinn Már hafði haft í vörslum sínum amfetamín, kókaín og ýmis frammistöðubætandi efni. Kristinn Hólm hafði sömuleiðis haft fíkniefni og stera í vörslum sínum á heimili sínu. Við húsleit í iðnaðarhúsnæði sem hann hafði á leigu fundust enn fremur töluverð fíkniefni, meðal annars amfetamín, hass, maríjúana, kókaín og MDMA-töflur. Þar fundust einnig íblöndunarefni og búnaður til að blanda og pakka fíkniefnum.

Kristinn Már viðurkenndi að hafa haft fíkniefnin á dvalarstað sínum og Kristinn Hólm játaði vörslu efnanna sem fundust á heimili hans. Báðir neituðu hins vegar aðild að innflutningnum frá Hollandi. Kristinn Hólm neitaði einnig sök vegna efnanna sem fundust í iðnaðarhúsnæðinu en dómurinn taldi sannað að hann hefði haft þau í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni.

Dómurinn taldi sannað að Íslendingarnir hefðu skipulagt innflutninginn í samstarfi við menn í Hollandi. Samskipti þeirra við Patrick, fundurinn í Ármúla og gögn úr farsímum studdu þá niðurstöðu. Meðal annars fundust ljósmyndir af fíkniefnunum í símum bæði Kristins Más og Patrick. Efnin báru sama auðkennisnúmer.

Kristinn Már hafði einnig átt samtöl við kaupendur þar sem hann ræddi um gæði fíkniefna, magn og verð. Í einu símtali 29. maí ræddi hann um að vera kominn með mjög gott kókaín og að hann gæti útvegað viðskiptavini 100 grömm. Dómurinn taldi þessi samtöl styðja þá niðurstöðu að hann hefði verið virkur þátttakandi í fíkniefnaviðskiptunum.

Kishan játaði aðild sína að innflutningnum fyrir dómi. Hann hafði séð um leigu húsbifreiðarinnar og skipulagningu ferðarinnar. Dómurinn taldi þátt hans hafa verið meiri en hinna tveggja Hollendinganna.

Sandeep og Mahesh neituðu báðir sök. Dómurinn taldi hins vegar framburð Kishan um þátt þeirra trúverðugan og studdan öðrum gögnum. Sandeep hafði meðal annars lagt inn peninga á bankareikning sinn og millifært þá áfram til fyrirtækis í eigu Kishan. Dómurinn taldi þetta hluta af fjárhagslegum undirbúningi innflutningsins.

Skoðuðu ekki náttúruperlur

Þá þótti ferðalag þremenninganna frá Seyðisfirði til Reykjavíkur óvenjulegt. Þeir óku nánast án þess að stoppa og fóru fram hjá helstu náttúruperlum landsins. Það þótti ekki samræmast skýringum þeirra um að þeir hefðu komið hingað í frí og til að skoða landið.

Dómurinn taldi háttsemi mannanna bera merki skipulagðrar og lagskiptrar brotastarfsemi þar sem hver þátttakandi gegndi ákveðnu hlutverki. Allir hefðu mátt gera sér grein fyrir því að þeir væru þátttakendur í ólögmætum innflutningi fíkniefna, þótt þeir hefðu ekki endilega þekkt alla aðra sem komu að starfseminni.

Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að um mikið magn hættulegra fíkniefna var að ræða, styrkleiki efnanna var mikill og þau ætluð til sölu hér á landi. Þá var brotavilji mannanna talinn sterkur og einbeittur.

Þungir dómar

Kristinn Hólm og Kristinn Már voru dæmdir í sex ára fangelsi hvor. Kishan hlaut fjögurra ára og sex mánaða fangelsi en Sandeep og Mahesh fengu fjögurra ára fangelsi hvor. Gæsluvarðhaldsvist þeirra allra frá 30. maí 2026 kemur til frádráttar refsingunum.

Dómurinn gerði jafnframt upptæk öll fíkniefnin, farsíma mannanna, 1.128.000 krónur sem fundust við húsleit og bók með skuldalista. Þá voru ýmis efni og búnaður sem tengdust fíkniefnastarfseminni gerð upptæk. Mennirnir voru jafnframt dæmdir til að greiða málsvarnarlaun verjenda sinna og sameiginlegan sakarkostnað að fjárhæð rúmlega 3,9 milljónir króna.

Dóminn má lesa hér. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅