Gímaldin með tónleika í Hannesarholti

Fókus

Mánudaginn 16. nóvember 2026 11:12

Gímaldin. Mynd: Yaroslav Bilyk. 

Tónlistarmaðurinn Gímaldin heldur tónleika í Hannesarholti næstkomandi fimmtudagskvöld, þann 19. nóvember, kl. 20:00. 

Yfirskrift tónleikanna er Evrópa/Neirópa og er í efninu tekist á við útkomu þjóðaratkvæðagreiðslunnar frá ágústmánuði um að hefja aftur aðildarviðræður við ESB. Í verkunum er fólgin hugleiðing um innlegg Zbigniew Preisners um hlutverk þjóðar í Evrópu: A song for the Unification of Europe og Van Den Budenmayer Funeral Music.

Valur Gunnarsson, rithöfundur og sagnfræðingur, verður kynnir og leggur út af efninu. 

Miðasala er á Tix en hér fyrir neðan er fréttatilkynning sem Gímaldin sauð saman um tónleikana: 

Íslendingar þurfa joð! – Tónleikar og málstofa í Hannesarholti 19da nóv. Eyrópa / Neirópa: Kvernig skal kópa?Eyrópa / Neirópa: Kvernig skal kópa?
Skipulagningin fyrir þessa tónleika hófst í mestu bjartsýni. gímaldin hafði stúderað sameiningarsögu Póllands og sá í hillingum hvað það yrði fallegt sjónarspil að spegla sameiningarsögu landanna eftir feitt og fallegt já í ágúst 2026.

Litatrilógía Kieślowskis spilaði stóra rullu, bæði vegna sameiningartákna í kvikmyndunum, en alls ekki síður vegna verks Preisners: Lag fyrir sameiningu Evrópu, sem ásamt Jarðarfarartónlist Budenmayers mynda uppistöðuna í tónlist viðburðarins. Myndi það vera hressandi öfugsnúið að leika þessa þungu og drungalegu tónlist við slíkt vonarþrungið og upphafsauðgandi tilefni.

En svo var bara ekkert já – en forsendur breytast í sjálfusér ekki neitt, bara afleiðingarnar.

Það hefur þegar verið skrifað og er birt á heimasíðu gímaldins, línkað frá facebooksíðu viðburðar, nánar um þær speglanir milli Póllands og Íslands sem gáfu tónsmiðnum ástæðu tilað telja sameiningu óhjákvæmilega.

Í orðabókum, sem byggja á orðasöfnum úr fórum Þórbergs Þórðarsonar má lesa upprunalega ritháttinn „aðilji-aðiljar“ – sem leiðir hugann að hvarfi stafsins úr orðinu „aðiljd“. ÞÞ, einsog öll vita, var jafn mikill sjálfstæðissinni og hann var alþjóðasinni – og má því eðlilega spyrja, hvaða hvatir liggja að baki rithætti eftir hans dag og umleið, hvað þýðir joðið?

Hver hóf tilraunir til sameiningar á síðasta tug síðustu aldar? Jón. Í nafni hvers var það gert? Jafnaðarmennsku! Hvaða efni skortir eyjarskeggja nyrst í norðurhafi helst af öllu, og skilur milli lífs og dauða þegar, vegna skorts á sameiningarhyggju, kjarnorkusprengjurnar fara að fljúga? Joð.

Þetta og ævaforn speki um mátt orða, sbr td að fela joðið úr nafni Iehova, ellegar mætti hver sem er öðlast omnipotensíu með því að þylja upphátt hið sannrétta nafn guðs. Aftur, hver fjarlægði joðið og afhverju megum við ekki stíga öll okkar mögulegu framfaraskref?

Karl faðir minn gat kanski varpað smá ljósi á það. Ehtíma í fyrstu dögun áætlana um sameiningu spilaði ég fyrir hann lag um Jevrópusambandsmál – nema hvað lýrikkin hafði upprunalega verið á ensku, þarsem þá stóð til að sænski hestatemjarinn í hljómsveitinni skyldi syngja það. En ég hafði snarað lýrikkinni yfir á tungu matríarkísins tilað gleðja föður minn. Þó höfðu orðið eftir ensk áhrifshljóð í viðlaginu, einsog gengur og gerist – en föður mínum var meinilla við þessi jú, og útskýrði að þegar hugmyndir, orð og hljóð þýddust á þenna hátt milli tungumála – væri hefði í íslenskunni að líta til þýsku og grísku – semsé au og ef. En það var hans leið að miðla hugmyndafræði Lærða skólans til þeirra sem höfðu hvorki bakgrunn né hneigð tilað láta klassisisma stjórna ferðinni.

Sagan er kanski langsótt, og merking óljós – en þá áttaði tónsmiðurinn sig, ma á því, að stóru mistök „sameiningarsinna“ á Íslandi voru að nota rangt slagorð. Rétt slagorð hefði auðvitað átt að vera „Ekki jú, heldur já!“

Við munum samt forðast tapsærindi á tónleikunum, fyrst og fremst með því að fjalla bara um jákvæðar hliðar menningarsamruna, gagnkvæmni eða sameiningar. Eiga enda tónsmiður, og fundarstjóri og gestamælandi kvöldsins, Valur Gunnarsson – einsog svo mörg önnur, sitt undir því að hafa getað ferðast um heiminn, lært um önnur samfélög, kynnst öðru fólki og lært að tala önnur tungumál.

Tónleikarnir Eyrópa/Neirópa – kverni skal kópa?, verða í Hannesarholti þann 19da nóvember og hefjast klukkan 20. Miðar fást á Tix.
https://tix.is/event/21885/eyropa-neiropa-kvernig-skal-kopa

Það er engin útgáfa sem tengist tónleikadagskránni beint, en hér má heyra nýjustu útgáfu gímaldins. https://youtu.be/zQ7B7l_80cY

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅