Pútín sagður hafa aflétt banni við því að ráða Selenskí af dögum
Ritstjórn DV
Mánudaginn 16. nóvember 2026 11:18
Volodomír Selenskí Úkraínuforseti.
Rússnesk stjórnvöld eru sögð hafa ákveðið að aflétta óformlegu banni við því að ráða Volodímír Selenskí, forseta Úkraínu, og æðstu herforingja landsins af dögum.
Ákvörðunin er sögð hafa verið tekin á lokuðum fundi rússneska öryggisráðsins með Vladimír Pútín forseta. Frá þessu greinir bandaríska dagblaðið New York Post og vísar til frétta rússneskra fjölmiðla sem eru hliðhollir stjórnvöldum í Kreml.
Samkvæmt fréttinni hafa ítrekaðar drónaárásir Úkraínumanna á rússnesk olíumannvirki orðið til þess að ráðamenn í Moskvu íhuga nú mun róttækari aðgerðir.
Sérstaklega er bent á endurteknar árásir á olíuhöfnina í Ust-Luga, skammt frá Sankti Pétursborg. Höfnin gegnir mikilvægu hlutverki í olíuútflutningi Rússa og hefur verið mikilvæg tekjulind fyrir stjórnvöld.
Á lokuðum fundi öryggisráðsins á fimmtudag eru rússneskir embættismenn sagðir hafa lýst vaxandi áhyggjum af kostnaði við varnir gegn úkraínskum drónum. Jafnframt hafi þeir viðurkennt að árásir Rússa á orkuinnviði Úkraínu hefðu ekki skilað tilætluðum árangri við að stöðva árásirnar.
„Það er tilgangslaust að reyna að verjast endalausum straumi dróna. Þess í stað verður að beina sjónum að þeim sem taka ákvarðanirnar,“ er haft eftir ónafngreindum rússneskum embættismanni.
Samkvæmt frásögninni hafi því verið rætt um að beina árásum að æðstu ráðamönnum Úkraínu, þar á meðal Selenskí, og herforingjum landsins.
Meðal þess sem er sagt hafa komið til umræðu er að beita öflugum ofurhljóðfráum vopnum gegn neðanjarðarbyrgjum og bílalestum sem flytja úkraínska leiðtoga.
Í frétt New York Post er jafnframt fullyrt að Rússar hafi reynt að ráða Selenskí af dögum á fyrstu stigum innrásarinnar árið 2022, en að tilraununum hafi síðar verið hætt eftir óformlegt samkomulag sem Pútín hafi samþykkt fyrir milligöngu þriðja aðila.
Sú fullyrðing hefur þó aldrei fengist staðfest.
Fundur öryggisráðsins er sagður hafa farið fram skömmu eftir viðræður Pútíns við Steve Witkoff og Jared Kushner, erindreka Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, í síðustu viku.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗