Krafa um stöðugleika og viðunandi afkomu
Féð rekið inn í almenninginn í Hrunaréttum. Bændur bera sig vel en finna fyrir verðbólgu og vöxtum. mbl.is/Sigurður Bogi
Gerð nýrra búvörusamninga, tollvernd og stuðningur við kynslóðaskipta fjárfestingu í landbúnaði voru mál ofarlega á baugi á fundum forystu Bændasamtaka Íslands (BÍ) með umbjóðendum sínum sem nýlokið er.
Haldnir voru alls 14 fundir hringinn í kringum landið; byrjað í Flóanum og endað vestur á Barðaströnd. „Afkoman er þokkaleg, en auðvitað finna bændur eins og aðrir fyrir verðbólgu og háum vöxtum. Efnahagsástandið er þungt og fyrir vikið verður geta til fjárfestinga minni en ella,“ segir Trausti Hjálmarsson formaður BÍ.
Fyrir nokkru var ákveðið að framlengja gildandi búvörusamning milli bænda og ríkisins, sem er frá árinu 2016, út næsta ár. Segja má að samningur þessi sé rammi utan um starfsumhverfi landbúnaðarins; það er stjórnar framleiðslu og þeim stuðningsgreiðslum sem fylgja.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗