Vilja afskrá Solid clouds úr Kauphöllinni

Eggert Árni Gíslason, stjórnarformaður Solid Clouds, en hann er stærsti eigandi félagsins í gegnum 1961 ehf. mbl.is/Árni Sæberg

Stjórn tölvuleikjafyrirtækisins Solid clouds hefur samþykkt að óska eftir því að hlutabréf félagsins verði tekin úr viðskiptum í Kauphöllinni, en félagið er skráð á First north vaxtarmarkað Kauphallarinnar. Kemur þetta í kjölfar mikilla hagræðingaaðgerða sem félagið hefur staðið í vegna slakrar fjárhagsstöðu og stjórnendaskipta.

Er þetta gert með fyrirvara um samþykki hluthafafundar.

Kostnaður og lítil velta

Ákvörðunin er tekin út frá lítilli veltu með bréf félagsins og kostnaðar við að halda félaginu skráðu að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar frá félaginu.

„Ákvörðun stjórnar byggist einkum á því að viðskipti með hlutabréf félagsins hafa um langt skeið verið takmörkuð og seljanleiki þeirra lítill. Jafnframt telur stjórn að kostnaður og umsýsla vegna áframhaldandi skráningar hlutabréfanna á First North séu ekki lengur í eðlilegu samræmi við ávinning félagsins og hluthafa þess af skráningunni. Að mati stjórnar má nýta fjármunina betur til rekstrar og þróunar starfseminnar. Afskráning kann jafnframt að auka sveigjanleika við framtíðarfjármögnun, meðal annars gagnvart fjárfestum sem leggja áherslu á óskráð félög. Afskráning tryggir þó hvorki nýja fjármögnun né tiltekið verðmat hlutabréfanna,“ segir í tilkynningunni.

Tekið er fram að afskráningin komi ekki til framkvæmda nema með samþykki bæði hluthafafundar og Kauphallarinnar.

„Félagið vekur athygli á að við afskráningu verða hlutabréfin ekki lengur í viðskiptum á First North og seljanleiki þeirra getur minnkað enn frekar. Jafnframt munu sérstakar upplýsingaskyldur samkvæmt reglum First North ekki lengur gilda með sama hætti. Áfram verður sinnt þeim skyldum sem leiða af lögum og samþykktum félagsins. Afskráningin sjálf felur hvorki í sér innlausn hlutabréfa, breytingu á eignarhlutdeild hluthafa né nýjar takmarkanir á framsali þeirra.“

Þungur rekstur

Rekstur félagsins hefur verið nokkuð þungur undanfarið. Fyrir um ári síðan hætti þáverandi fjármálastjóri og einn stofnandi félagsins og á sama tíma tók nýr framkvæmdastjóri við. Fór félagið í kjölfarið í gegnum hagræðingaraðgerðir og fékk björgunarfjármögnun vegna slakrar fjárhagsstöðu upp á 300 milljónir. Skar félagið fastan kostnað niður um 50% miðað við sama tíma árið áður. Hluthafafundur samþykkti á árinu einnig að lækka hlutafé félagsins um 80% tengt þessari endurskipulagningu.

Hjá Solid clouds störfuðu í september 11 starfsmenn og voru hluthafar þá 1.567 talsins.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅