Ingvar úr Viðreisn í Sjálfstæðisflokk
Ingvar Þóroddsson þingmaður hefur ákveðið að segja skilið við þingflokk Viðreisnar og ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Hann segir stefnu ríkisstjórnarinnar ekki lengur samræmast sannfæringu sinni, hann styðji ekki lengur ríkisstjórnina og gangi því til liðs við stjórnarandstöðu.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Ingvar sendi frá sér í dag. Hann segist hafa tilkynnt forseta Alþingis, formanni Viðreisnar og þingflokksformanni um ákvörðun sína.
Ingvar segir fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027 og síðustu kjördæmaviku hafa gert sér ljóst að leiðir hans og ríkisstjórnarinnar hafi skilið.
„Öflugt atvinnulíf er forsenda þess að við getum staðið undir góðri heilbrigðisþjónustu, menntun og öðrum sameiginlegum verkefnum. Við getum aldrei skattlagt okkur til velsældar.
Ríkisstjórn sem ætlar að ná tökum á ríkisfjármálunum þarf að sýna árangur í aðhaldi og hagræðingu áður en hún gengur enn frekar á tekjur fólks og þrengir að rekstri fyrirtækja,“ segir í færslu Ingvars.
Viðreisn hafi brugðist kjósendum
Ingvar gagnrýnir sérstaklega skattahækkanir ríkisstjórnarinnar og segir þær ganga gegn loforðum Viðreisnar fyrir síðustu kosningar. Hann telur ríkisstjórnina leggja of mikla áherslu á aukna skattheimtu í stað aðhalds, hagræðingar og verðmætasköpunar.
Hann nefnir meðal annars fyrirhugaða hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24%, hækkun vörugjalda á bifreiðar og innleiðingu kílómetragjalds. Hann gagnrýnir jafnframt að hægt hafi gengið að fylgja eftir hagræðingartillögum sem ríkisstjórnin lét vinna.
Ingvar segist hafa heyrt frá fólki í atvinnulífinu sem kaus Viðreisn í síðustu kosningum sem upplifir að það hafi verið svikið.
„Ég skil þá upplifun mjög vel. Þetta voru líka áherslurnar sem ég trúði á og talaði fyrir.“
Biður Austfirðinga afsökunar
Þingmaðurinn gagnrýnir einnig forgangsröðun ríkisstjórnarinnar í samgöngumálum og telur ekki hafa verið staðið við fyrirheit gagnvart Norðausturkjördæmi.
Hann bendir á að framlög til samgöngumála dragist saman í fjárlagafrumvarpinu á sama tíma og kílómetragjald eigi að hækka um tæp 16%. Þá gagnrýnir hann fækkun ferða í almenningssamgöngum á landsbyggðinni og fyrirhugaðar breytingar á Loftbrú.
Sérstaklega nefnir hann að Fjarðarheiðargöng séu ekki á framkvæmdaáætlun samþykktrar samgönguáætlunar, þrátt fyrir að göngin séu fullhönnuð og tilbúin til útboðs.
„Ég greiddi þessari samgönguáætlun atkvæði. Það voru mistök. Ég bið Austfirðinga afsökunar á því og tek ábyrgð á eigin atkvæði.“
Ingvar lýsir jafnframt andstöðu við tillögur sem myndu fækka þingmönnum Norðausturkjördæmis úr tíu í sjö og segist ekki munu samþykkja slíka breytingu.
Gagnrýnir hrossakaup í stjórnarsamstarfinu
Ingvar segir samstarf stjórnarflokkanna hafa snúist um of um hrossakaup þar sem flokkar samþykki mál sem gangi gegn eigin sannfæringu til að fá sínu framgengt annars staðar.
Hann nefnir þar meðal annars áform um leigubremsu, vísitölutengingu bóta og opinber afskipti af bragðefnum í nikótínvörum.
„Í grunninn er ég frjálslyndur, hægrisinnaður landsbyggðarþingmaður,“ segir Ingvar og telur sig eiga meiri samleið með Sjálfstæðisflokknum í grundvallarmálum.
Hann segist hafa átt góð og uppbyggileg samtöl við forystu Sjálfstæðisflokksins og lýst vilja sínum til að ganga til liðs við þingflokkinn. Samstarfið við þingmenn flokksins hafi verið gott á kjörtímabilinu, sérstaklega við oddvita flokksins í Norðausturkjördæmi.
„Í umræðum um atvinnulíf og efnahagsmál hefur það heyrt til undantekninga að ég hafi verið ósammála því sem þingmenn flokksins hafa sagt í pontu eða lagt til.“
Ingvar segir ákvörðunina erfiða og tekna eftir langa íhugun. Honum þyki vænt um samstarfsfólk sitt í Viðreisn en beri jafnframt ábyrgð gagnvart kjósendum sínum og eigin sannfæringu.
Hann hyggst áfram styðja þau mál sem hann telur góð, óháð því hvaða flokkar leggja þau fram.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗