Vilja kveðja Aron Einar með sigri
„Aron hefur lagt allt í sölurnar fyrir íslenska landsliðið og okkur langar að hjálpa honum að klára ferilinn eins vel og hægt er,“ sagði Ísak Bergmann Jóhannesson, landsliðsmaður í fótbolta, á blaðamannafundi í gær.
Aron Einar Gunnarsson kveður landsliðið eftir leik Íslands og Lúxemborgar í Þjóðadeildinni á Laugardalsvelli annað kvöld.
Ísak segir það auka enn á löngun leikmanna til að vinna leikinn.
„Aron hefur nánast verið leiðtogi þjóðarinnar frá því hann byrjaði. Hann er þvílíkur sigurvegari og vonandi getum við unnið leikinn og klárað þennan landsliðsferil hjá honum mjög vel. Það er aukinn hvati.“
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗