Sækir um skilnað vegna trúarofsa eiginmannsins - Byrjaði allt eftir nauðungarmálið
Joana Sanz, eiginkona fyrrum Barcelona-stjörnunnar Dani Alves, hefur staðfest að þau séu skilin að borði og sæng eftir níu ára hjónaband. Ástæðan er mikil trúarvakning Brasilíumannsins.
Alves, sem er 43 ára, sneri sér að kristinni trú á meðan hann sat í fangelsi vegna nauðgunarmáls. Hann hefur síðan gerst trúboði og ferðast um heiminn til að prédika.
Joana, sem er 34 ára fyrirsæta, greindi frá sambandsslitunum á Instagram.
„Ég er ekki trúuð. Því meira sem ég sé af því sem hann gerir, því meira fjarlægist ég þetta allt,“ sagði hún.
Alves og Sanz.
„Við höfum verið aðskilin í nokkurn tíma, einmitt af þessari ástæðu.“
Spænski sjónvarpsmaðurinn Javi Hoyos segir að skilnaðarferli sé hafið og að Joana upplifi sig eina með dóttur þeirra, Julietu, sem er eins árs.
„Hún skilur trú hans en hvernig hann hefur helgað líf sitt trúnni hefur fjarlægt hann fjölskyldunni,“ sagði Hoyos.
GettyImages
Alves var sakfelldur fyrir nauðgun á næturklúbbi í Barcelona árið 2024 og dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi. Dómnum var hins vegar hnekkt í áfrýjun í mars 2025.
Joana stóð með Alves í gegnum réttarhöldin þrátt fyrir að hafa áður íhugað skilnað.
Alves hefur ekki tjáð sig um sambandsslitin en birti nýlega mynd af sér að lesa Biblíuna í flugvél.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗