Stakk fyrrverandi fjórum sinnum í höfuðið
Shem Tatupu, fyrrverandi leikmaður í áströlskum fótbolta, hefur verið dæmdur í 12 ára og tveggja mánaða fangelsi fyrir að ráðast á fyrrverandi kærustu sína.
Hinn þrítugi játaði sök um líkamsárás, hálstak og að hafa af ásetningi valdið alvarlegum áverkum. Hann þarf að afplána níu ár áður en hann getur sótt um reynslulausn.
Tatupu tók konuna hálstaki og stakk hana fjórum sinnum í höfuðið í árás sem stóð yfir í níu klukkustundir í maí 2025. Brot úr hnífnum situr enn fast í höfuðkúpu hennar.
„Ekki er hægt að líða þá plágu sem heimilisofbeldi er,“ sagði James Elliott dómari þegar hann kvað upp dóm yfir Tatupu í Hæstarétti Viktoríufylkis 9. nóvember.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗