Beint streymi: Heimsþing kvenleiðtoga
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands. Yfir 500 leiðtogar koma saman á Heimsþingi kvenleiðtoga í Hörpu. Skjáskot
Yfir 500 leiðtogar frá um 90 löndum koma saman á Heimsþingi kvenleiðtoga sem stendur nú yfir í Hörpu í Reykjavík. Þar er meðal annars fjallað um jafnrétti, frið, öryggi, lýðræði og alþjóðlegt samstarf.
Þingið var sett í gær og er nú haldið í níunda sinn. Yfirskrift þess í ár er „Power, Together for Community“ og er sérstök áhersla lögð á frið, öryggi og stöðu lýðræðis í ljósi stöðu heimsmála.
Hægt er að fylgjast með þinginu í beinu streymi hér að neðan.
Meðal þátttakenda í ár eru Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, Julia Gillard, fyrrverandi forsætisráðherra Ástralíu, og Mathias Cormann, framkvæmdastjóri Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD).
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er sérstakur verndari þingsins sem stendur til þriðjudagsins 17. nóvember.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗