Trommari Foo Fighters spenntur fyrir Íslandsheimsókn
„Ég er persónulega mjög spenntur því ég hef aldrei komið þangað,“ segir Ilan Rubin, trommari Foo Fighters.
Tilkynnt var í morgun að Foo Fighters er á leið til Íslands og heldur tónleika í Nýju Laugardalshöllinni 9. júní á næsta ári.
Rubin hefur verið lengi í bransanum þó að hann hafi ekki gengið til liðs við Foo Fighters fyrr en í fyrra. Hann hafði áður spilað með Nine inch nails, Lostprophets, Angels & Airwaves og fleirum. Ferillinn spannar yfir tvo áratugi.
Ilan Rubin tók við sem trommari Foo Fighters og þykir hafa komið afar sterkur inn. Hann er spenntur fyrir heimsókn sinni hingað til lands næsta sumar. AFP/Mauro Pimentel
„Ég er 38 ára núna en fór í fyrsta alþjóðlega tónleikaferðalagið mitt fimmtán eða sextán ára, ég hef ferðast um Evrópu í 21 ár. Samt hef ég aldrei komist til Íslands. Það er satt að segja sjaldgæft á þessum tímapunkti að fara eitthvert sem ég hef ekki komið til að minnsta kosti einu sinni, hvað þá nokkrum sinnum. Þannig að þetta verður frábært og ef mér skjátlast ekki held ég að það séu fyrstu tónleikarnir á ferðalaginu. Ég er mjög spenntur.“
Dave Grohl, forsprakki Foo Fighters, hefur sagt að Ísland sé eftirminnilegasti staður sem hann hefur komið til. Sveitin hefur þrisvar haldið hér tónleika, árin 2003, 2005 og 2017, og frægt varð í þessum heimsóknum að Grohl tók ástfóstri við íslenskt brennivín. Hann tók með sér nokkrar flöskur af landi brott, klæddist brennivínsbol á tónleikunum hér og boðaði fagnaðarerindið í erlendum fjölmiðlum.
Foo Fighters er í dag skipuð Nate Mendel, Rami Jaffee, Dave Grohl, Pat Smear, Chris Shiflett og Ilan Rubin. AFP/Frazer Harrison
Rubin hafði ekki heyrt af ást Grohls á brennivíni en leist nokkuð vel á það. „Ég er meira en til í að prófa. Mér finnst gaman að prófa innlent áfengi, bjóra, sterka drykki, hvað sem það er. Ég er ævintýragjarnari við það en til dæmis að smakka alltaf matinn á þeim stöðum sem við heimsækjum. Þú verður líka að segja mér hvað ég á að borða þegar ég er þarna.“
Við eigum kæstan mat og fleira góðgæti…
„Það er nánast jafn mikilvægt að vita hvað maður á ekki að borða.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

