Telur að Pochettino sé að taka við United á fullkomnum tímapunkti

Harry Redknapp, fyrrum knattspyrnustjóri Tottenham, telur að Mauricio Pochettino sé að taka við Manchester United á fullkomnum tímapunkti þrátt fyrir slæmt gengi liðsins.

Redknapp fjallar um ráðningu Argentínumannsins í pistli sínum hjá The Sun en United situr í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir tíu leiki.

„Það er varla hægt að finna betri tíma til að taka við. Eina leiðin er upp á við,“ skrifar Redknapp.

Hann líkir stöðunni við þegar hann sjálfur tók við Tottenham árið 2008 en liðið var þá í miklum vandræðum.

Redknapp hefur mikla trú á Pochettino en segir leikmannahóp United langt frá því að vera nægilega góðan.

„Pochettino er frábær þjálfari en ef hann er með lélega leikmenn getur hann ekkert gert. Það skiptir engu hver þjálfarinn er.“

Redknapp telur að það geti tekið heilt ár að sjá raunverulegan árangur og segir nauðsynlegt að stjórnendur félagsins styðji nýja stjórann á leikmannamarkaðnum.

Hann gagnrýnir jafnframt forráðamenn United harðlega fyrir ákvarðanatöku undanfarinna ára og meðferðina á Michael Carrick.

Redknapp telur þó að Pochettino sé í sterkri samningsstöðu og geti krafist breytinga á félaginu.

„Hann mun vilja breyta hlutunum og fá sitt fólk í kringum sig,“ segir Redknapp.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅