Áhrifamenn í Kísildalnum vilja koma Jensen Huang aftur til valda – Leita stuðnings Hvíta hússins
Áhrifamiklir aðilar í tæknigeiranum vinna nú að því að koma Jensen Huang, stofnanda Nvidia, aftur í forstjórastól fyrirtækisins, aðeins nokkrum dögum eftir að hann sagði af sér í kjölfar hneykslismála.
Áhrifamiklir bandamenn Huang í Kísildalnum eru sagðir hafa tekið höndum saman og vinna nú að því að tryggja endurkomu hans. Þeir eru jafnvel sagðir leita eftir stuðningi Hvíta hússins.
Frá þessu greinir New York Post og vísar til umfjöllunar Financial Times.
Elon Musk meðal stuðningsmanna
Samkvæmt heimildum Financial Times hafa stuðningsmenn Huang komið á fót eins konar „stríðsherbergi“ (e. war room) þar sem stjórnendur úr tæknigeiranum leggja á ráðin um hvernig hægt sé að koma honum aftur til valda innan Nvidia.
Bendir einn bandamanna hans á í samtali við Financial Times að allir áhrifamestu menn tæknigeirans séu hrifnir af Huang.
Meðal þeirra sem hafa lýst yfir stuðningi við endurkomu Huang eru Elon Musk, forstjóri Tesla og SpaceX, og Tim Sweeney, forstjóri tölvuleikjafyrirtækisins Epic Games. Þeir hafa stutt herferð sem gengur undir yfirskriftinni „Bring Jensen Back“.
Huang, sem er 63 ára, sagði af sér eftir að upp komst um meint ástarsamband hans við konu sem bandarísk stjórnvöld hafa grunað um tengsl við kínverskar njósnir. Síðar komu fram upplýsingar um önnur ástarsambönd hans við starfsmenn Nvidia.
Málin hafa valdið miklum usla innan fyrirtækisins og hlutabréf þess hafa fallið í verði.
Ráðherra vill róttækar breytingar
Ekki eru þó allir á eitt sáttir um að Huang eigi að snúa aftur.
Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, hefur hvatt stjórn Nvidia til að leita að nýjum forstjóra utan fyrirtækisins. Hann telur að tæknirisinn þurfi á róttækum breytingum að halda.
Þá hefur Nvidia einnig sætt athugun vegna gruns um að háþróaðir tölvukubbar fyrirtækisins hafi verið fluttir til Kína þrátt fyrir útflutningshömlur Bandaríkjanna.
Bessent hefur krafist svara frá stjórn fyrirtækisins um hvort Nvidia hafi hagnast á slíkum viðskiptum.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur varið Huang í tengslum við hneykslismálin en hefur ekki tekið afstöðu til þess hvort hann eigi að fá forstjórastarfið aftur. Forsetinn hefur þó nefnt Tim Cook, fyrrverandi forstjóra Apple, sem mögulegan arftaka hans.
Óvissa um framtíð fyrirtækisins
Eftir afsögn Huang tók Colette Kress, fjármálastjóri Nvidia, tímabundið við forstjórastarfinu.
Stjórn fyrirtækisins hefur ekki staðfest að til greina komi að ráða Huang aftur. Þvert á móti hafa borist fregnir af því að leitað hafi verið til annarra áhrifamikilla stjórnenda í tæknigeiranum.
Tveir stórir fjárfestar í Nvidia, Brad Gerstner og Gavin Baker, hafa þó sent stjórninni opið bréf þar sem þeir hvetja hana til að halda öllum möguleikum opnum, þar á meðal endurkomu Huang.
Huang stofnaði Nvidia árið 1993 og hefur verið helsta andlit fyrirtækisins í meira en þrjátíu ár. Undir hans stjórn varð Nvidia eitt verðmætasta fyrirtæki heims.
Framtíð Huang hjá Nvidia er því enn í óvissu, en ljóst er að hann á enn öfluga stuðningsmenn í tæknigeiranum sem vilja sjá hann snúa aftur í forstjórastólinn.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗