Rifjar upp það sem Inga Sæland hefur gert og spyr: Hvar er þakklætið?
Ritstjórn DV
Mánudaginn 16. nóvember 2026 10:30
Inga Sæland. Mynd: DV/KSJ
Kristinn T. Haraldsson, eldri borgari og félagi í Samfylkingunni, segir að frá lýðveldistímanum hafi enginn gert meira fyrir eldri borgara og öryrkja en það sem Flokkur fólksins hefur náð í gegn á valdatíma núverandi ríkisstjórnar. Samt fari lítið fyrir þakklæti og flokkurinn sé að þurrkast út miðað við skoðanakannanir. Kristinn segir að tiltekinn fjölmiðill hafi tekið herferð geng Ingu Sæland, formanni flokksins, og talið sig þar hafa fundið veikasta hlekkinn í ríkisstjórnarsamstarfinu, og vísar þar augljóslega til Morgunblaðsins.
Þetta kemur fram í aðsendri grein Kristins á Vísir.is:
„Allt frá því að úrslit síðustu kosninga lágu fyrir hefur endalaust verið níðst á Ingu Sæland og flokki hennar sökum þess að ákveðinn fjölmiðill, nú í stjórnarandstöðu gat ekki sætt sig við niðurstöðu kosninganna og taldi hana og flokk hennar vera veikasta hlekkinn í ríkisstjórninni og því skyldi herjað á hana til að reyna að sprengja ríkisstjórnina. Nú er kjörtímabilið hálfnað og Inga stendur enn keik og lætur engan bilbug á sér finna frekar en ríkisstjórnin. Þeir sem til mín þekkja vita að ég er yfirlýstur stuðningsmaður Samfykingarinnar og því furðulegt að ég skuli taka upp hanskann fyrir Ingu og hennar flokk, eða hvað?“
Kristinn segist hafa kviðið því að setjast í helgan stein og lifa af ellilífeyri og örorkubótum en í stjórnartíð Ingu og Flokks fólksins hafi orðið bytlingarkenndar breytingar til góðs. Hann rifjar upp það sem hafi verið gert: Nýtt ororkukerfi hafi hækkað tekjur öryrkja um 50.000 krónur á mánuði, tengt lífeyri við launavísitölu og hækkað frítekjumark ellilífeyris í áföngum. Sérstök jólauppbót sé nú greidd til tekjulágra öryrkja, húsnæðisbótamörk öryrkja hafi verið hækkuð og margt fleira nefnir hann sem gert hafi verið til að bæta hag þessara hópa.
Hvar er þakklætið?
„Þetta er meira en nokkrum stjórnmálaflokki hefur tekist að gera fyrir eldri borgara og öryrkja frá upphafi lýðveldisins að ég tel. Þá spyr sem ekki veit. Hvernig stendur á því að Flokkur fólksins og Inga eru samkvæmt skoðannakönnunum að þurrkast út? Miðað við skoðanakannirnr hafa öryrkjar og eldri borgarar yfirgefið eina flokkinn sem er að berjast fyrir kjörum þeirra,“ skrifar Kristinn en grein hans í heild má lesa hér.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗