Aðsend grein: Aðgerðir á degi íslenskrar tungu
Aðsend grein úr Morgunblaðinu
Undanfarin misseri höfum við rætt mikið um lestur og íslensku. Það er mikilvægt og gott. En okkur verður tíðrætt um dvínandi færni og áhuga yngri kynslóða í þessu samhengi. Áhyggjur af því eru réttmætar. Lestur eykur orðaforða, þjálfar athygli og víkkar sjóndeildarhringinn. En hann á – og þarf líka – að vera skemmtilegur. Það skiptir máli að rækta áhugann sem kviknar þegar við finnum bók sem við viljum ekki leggja frá okkur. Hjá börnum getur það jafnvel verið myndasaga eða spennusaga sem foreldrum finnst kannski frekar óhugnanleg. Það sem skiptir langmestu máli er að börn upplifi gleðina sem fylgir því að lesa. Ef við færum þeim gleðina getum við glætt áhuga á lestri og styrkt stöðu íslenskrar tungu.
Íslenskan hefur fylgt okkur í meira en þúsund ár. Hana er jafnt að finna í fornum handritum og í skilaboðunum sem við sendum hvert öðru í daglegu amstri. Íslenskan er í tónlistinni, í sjónvarpinu, í fréttunum, í hlaðvörpunum og í samtölunum við eldhúsborðið. Dagur íslenskrar tungu er tilefni til að gleðjast yfir öllu sem tungumálið hefur gefið okkur. En líka til að spyrja hvernig við gerum íslenskuna að sjálfsögðum kosti þegar önnur tungumál og afþreying toga í okkur úr öllum áttum.
50 milljónir til aukins framboðs bóka fyrir börn og ungmenni
Í ráðuneyti menningar höfum við undanfarið unnið að kortlagningu íslensks bókamarkaðar og í þeirri vinnu hefur komið fram skýr þörf fyrir aukið framboð nýrra bóka á íslensku fyrir börn og ungmenni. Ekki bara bækur sem fullorðnum finnst að þau ættu að lesa, heldur bækur sem þau sjálf vilja lesa. Það þarf ólíkar sögur fyrir ólíkan aldur og smekk. Börn og ungmenni eru sá hópur sem mér finnst mikilvægast að leggja áherslu á og spyrja þau hvað þau vilja. Hvað finnst ykkur skemmtilegt að lesa? Hvað vekur forvitni?
Ég hef ákveðið að verja 50 milljónum króna árlega næstu fjögur árin til að auka framboð bóka á íslensku fyrir börn og ungmenni sérstaklega. Verkefnið mun ná til útgáfu nýrra íslenskra bóka og þýðinga erlendra bóka. Í þessari vinnu verður haft samráð við bæði höfunda og útgefendur, en ekki síst börnin og ungmennin sjálf. Ég vænti þess að þessi sértæka og nýja áhersla muni bera ávöxt strax á næsta ári, stuðla að fjölgun lestrarmínútna hjá börnum og ungmennum, auka áhuga barna og ungmenna á bókum og veita þeim þá gleði sem getur fylgt lestrinum. Það er lykilatriði í þessu átaki að börn og ungmenni hafi sitt að segja um það hvað er skrifað og gefið út. Þau vilja sjálfsagt lesa eitthvað sem hefði aldrei hvarflað að sjálfum mér og það er bara í himnalagi. Til þess er leikurinn gerður.
Máltækni er mannréttindamál
Börn alast nú upp við tækni sem svarar spurningum, segir sögur og hjálpar þeim að læra. Ef hún skilur ekki íslensku, eða skilur hana miklu verr en önnur tungumál, verður sífellt auðveldara að færa heilu samtölin og verkefnin yfir á ensku. Þessu þurfum við að vinna gegn. Við eigum að gera þá kröfu að íslenskan fái að vera með. Það kallar á rannsóknir, gögn og samstarf við tæknifyrirtæki. Á undanförnum árum hefur náðst mikill árangur í máltækni sem við munum halda áfram að byggja á. Við eigum ekki að þurfa að velja á milli tækniframfara eða notkunar á tungumálinu. Ég mun áfram vinna að því að koma íslenskunni að á sem flestum sviðum tækninnar. Næsta skref verður stigið í dag þegar við hleypum af stað ákalli til tæknirisans Apple. Ég óska þar eftir stuðningi landsmanna við að þrýsta á Apple að innleiða íslensku í stýrikerfi sitt. Framtíð íslenskrar tungu krefst þess að hún verði aðgengileg í nýjustu tækni og framtíð þeirra sem eiga við aðgengishindranir að stríða er samofin því að sú tækni sé aðgengileg á móðurmálinu.
Tölum áfram saman á íslensku
Við segjum gjarnan að fólk sem flytur hingað eigi að læra íslensku. Það er eðlilegt og mikilvægt að bjóða upp á góða kennslu og raunhæfar leiðir til náms. En hvað gerum við sjálf þegar einhver reynir að tala íslensku við okkur? Mörg okkar skipta samstundis yfir í ensku, yfirleitt gerum við það af kurteisi og góðum hug. En góðvildin getur bitið í skottið á okkur. Sá sem er að læra fær fyrir vikið ekki tækifæri til að æfa sig. Við getum ekki annars vegar hvatt fólk til að tileinka sér íslensku og hins vegar tekið af því hvert tækifæri til að nota hana.
Það er vel við hæfi að við höldum dag íslenskrar tungu hátíðlegan á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Jónas var merkilegur fyrir margra hluta sakir. Hann var rithöfundur, ljóðskáld, brautryðjandi í íslenskum bókmenntaheimi og náttúrufræðingur. En hann var ekki síst frumkvöðull í íslenskri nýyrðasmíð. Þegar hann þýddi bók um stjörnufræði fyrir tæpum tveimur öldum vantaði íslensk orð yfir ýmis hugtök. Jónas brást við með því að smíða ný orð, meðal annars orðin aðdráttarafl og sporbaugur, sem okkur þykja sjálfsögð í dag.
Jónas sýndi okkur þannig hversu mikilvægt það er að málið geti fylgt okkur inn í nýja tíma. Það er verkefni okkar enn í dag og verður um alla tíð. Að tryggja að hægt sé að fjalla um nýjustu vísindi, nýta nýjustu tækni og segja nýjar sögur á íslensku.
Til hamingju með dag íslenskrar tungu!
Logi Einarsson er ráðherra menningar, nýsköpunar og háskólamála.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗