Breki snýr aftur til Danmerkur en má ekki spila

Breki Baldursson er kominn aftur til Esbjerg.

Breki Baldursson er kominn aftur til Esbjerg. Ljósmynd/Esbjerg

Knattspyrnumaðurinn Breki Baldursson er snúinn aftur til danska félagsins Esbjerg eftir lánsdvöl hjá norska félaginu Åsane.

Hinn tvítugi Breki lék 13 leiki fyrir Åsane í norsku B-deildinni eftir að hafa gengið til liðs við félagið í sumar. Hann er farinn að æfa aftur með Esbjerg, þótt lánssamningurinn gildi formlega til 31. desember.

Hann getur ekki leikið keppnisleiki fyrir Esbjerg fyrr en á nýju ári.

Breki gekk til liðs við Esbjerg frá Fram árið 2024 og hefur leikið 17 leiki með aðalliði danska félagsins.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅