Breki snýr aftur til Danmerkur en má ekki spila
Knattspyrnumaðurinn Breki Baldursson er snúinn aftur til danska félagsins Esbjerg eftir lánsdvöl hjá norska félaginu Åsane.
Hinn tvítugi Breki lék 13 leiki fyrir Åsane í norsku B-deildinni eftir að hafa gengið til liðs við félagið í sumar. Hann er farinn að æfa aftur með Esbjerg, þótt lánssamningurinn gildi formlega til 31. desember.
Hann getur ekki leikið keppnisleiki fyrir Esbjerg fyrr en á nýju ári.
Breki gekk til liðs við Esbjerg frá Fram árið 2024 og hefur leikið 17 leiki með aðalliði danska félagsins.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗