Dæmdur til að borga um 50 milljónir í vangoldin meðlög

Wes Morgan, fyrrum fyrirliði Leicester City, hefur verið gert að greiða að minnsta kosti 274 þúsund pund, tæpar 50 milljónir króna, í vangoldin meðlög eftir sjö ára dómsmál.

Morgan, sem er 42 ára, á tvo syni með fyrrum sambýliskonum sínum, Leylu Antoniou og Körlu Morrell, sem hafa barist fyrir meðlagsgreiðslum.

Samkvæmt The Sun hélt Morgan því fram eftir að knattspyrnuferli hans lauk árið 2021 að hann væri atvinnulaus og tekjulaus. Dómstóll komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að tekjur hans hefðu verið mun hærri en hann gaf upp.

Morgan var jafnframt sakaður um að hafa leynt eignum og tekjum að andvirði allt að fimm milljóna punda.

Dómari gagnrýndi málatilbúnað hans harðlega og staðfesti að honum bæri að standa við fjárhagslegar skuldbindingar gagnvart börnum sínum.

Morgan er þekktastur fyrir að hafa verið fyrirliði Leicester þegar félagið vann óvænt Englandsmeistaratitilinn árið 2016.

Hann lék einnig lengi með Nottingham Forest áður en hann gekk til liðs við Leicester árið 2012.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅