Aðsend grein: Gordíonshnútur Þórkötlu
Aðsend grein úr Morgunblaðinu
Það þarf engan að undra að húsnæðismál í Grindavík þyki orðin flókin eftir umræðu síðustu daga og mánuði. Kynningarfundur Þórkötlu á endurkaupaáætluninni sem fólk beið eftir mánuðum saman sprakk í loft upp og kom starfsmönnum Þórkötlu í opna skjöldu þrátt fyrir aðvaranir úr öllum áttum fyrir fundinn. Sá hnútur sem málið er í nú snýst um tvö einföld atriði. Hið fyrra er að fólk, sem Þórkatla er að bjóða að kaupa húsin sín til baka, hefur ekki þau fjárráð sem þarf til þess á þessum tímapunkti. Hið seinna snýst um að þótt fólk sé tilbúið að hefja endurreisn á heimaslóðum, byggða á nýju áhættumati almannavarna, þá er það ekki tilbúið að koma með eigið fé sitt til baka fyrr en atburði lýkur. Fyrra atriðið er augljóst öllum sem skoða þróun og stöðu fasteigna- og leigumarkaða og hið síðara snýst um að stofna ekki fjárhag fjölskyldna í frekari óvissu en þegar hefur orðið frá rýmingu. Til viðbótar þessu verður fólk að hafa að einhverju húsnæði að ganga ef aftur kemur til rýmingar. Þetta sjónarmið fellur að öllum fyrri ábendingum Grindavíkurnefnda og skýrslum Alþjóðabankans sem vinsælt var að vísa til.
Framsetning Þórkötlu á tilboðum sínum er villandi. Þar er sagt að Grindvíkingar hafi val um að leigja, geyma eða kaupa. Grindvíkingum býðst ekki að leigja húsin sín þótt nokkrar blokkaríbúðir séu til leigu eins og þær íbúðir sem Þórkatla á ekki. Viljir þú bíða og setja húsið í „geymslu“ út árið 2027 þarf að gera það óíbúðarhæft og fara úr bænum fyrir 1. febrúar. Sama gildir ef fjölskylda getur ekki gengið að skilmálunum, þá ber hinum sama að yfirgefa bæinn aftur. Þetta er pressan sem Grindvíkingar fá á aðventunni ofan í þá óvissu sem fyrir er.
Sú lausn sem ég hef bent á er að láta þá Grindvíkinga sem treysta sér til og vilja flytja í húsin sín strax fá þau á kostnaðarverði, þ.e. greiða hita, rafmagn, tryggingar, fasteignagjöld og viðhald þar til atburði lýkur. Þá fyrst er hægt að ætlast til að fólk geti sest niður og metið stöðu sína. Þær eignir sem fólk flytti ekki í væru orðnar söluvara á frjálsum markaði í höndum Þórkötlu og markaðsverðið á þeim eignum færi eftir því hversu sterkt samfélagið væri orðið á þeim tíma.
Það er þekkt hvernig Alexander mikli leysti sinn gordíonshnút en hvað mun Örn Viðar gera með sinn?
Pétur Hafsteinn Pálsson er framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗