Englendingar gerðu grín að Yamal

Lamine Yamal í leiknum í gær.

Lamine Yamal í leiknum í gær. AFP/Thomas Coex

Stuðningsmenn Englands gerðu grín að Lamine Yamal, leikmanni Spánar, með söngvum á borð við „Hvar er Gullknötturinn þinn?“ á meðan lið þeirra vann 3:2-sigur í Þjóðadeildinni í Madríd á sunnudag.

Gestirnir sungu einnig „Harry Kane, sá besti í heimi“ til heiðurs fyrirliða Englands, sem hlaut verðlaunin nýverið.

Kane skoraði úr vítaspyrnu áður en Ezri Konsa og Ben White juku forystu Englands í 3:0. Spánverjar svöruðu með mörkum frá Mikel Oyarzabal og Nico Williams eftir að Elliot Anderson hafði verið rekinn af velli.

England hélt út og batt þar með enda á 43 leikja taplausa hrinu heimsmeistaranna og endaði í efsta sæti síns riðils.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅