Bríet fékk sér bíl í staðinn fyrir að eignast börn
Sunneva Eir Einarsdóttir, Bríet og Brynhildur Gunnlaugsdóttir eru búnar að eiga góða viku. Samsett mynd/Skjáskot Instagram
Veturinn mætti með hörku í vikunni sem leið með frosti og fönn en stjörnurnar létu það ekki á sig fá. Ef fólk vill ekki klæðast húfu er eina leiðin að skella sér til Dubai eins og nokkrar íslenskar stjörnur gerðu.
Skvísaði sig upp!
Sunneva Eir Einarsdóttir, áhrifavaldur og hlaðvarpsstjarna, gerði sig til fyrir lifandi þátt af teboðinu og leit frekar út fyrir að vera stödd á Miami en á Íslandi.
Hundapabbi!
Guðmundur Birkir Pálmason, kírópraktor og áhrifavaldur, er stoltur hundapabbi en hann fór út að ganga með hundinn sinn í vikunni sem leið. Hann mætti líka í vinnuna.
Lífið er ekki alltaf LA!
Áhrifavaldurinn Gunnar Skírnir var orðinn þreyttur á vetrinum og nýtti vikuna í að rifja upp sumarið. Einhver þurfti að halda Reykjavík á tánum í sumar.
Dubai!
Samfélagsmiðlastjarnan Brynhildur Gunnlaugsdóttir ætlar ekki að grafa sig í fönn og birti myndir frá sér í Dubai.
Nýr bíll!
Tónlistarkonan Bríet fékk sér annan bíl á meðan aðrir eru að eignast börn.
Lúxus í Dubai!
Förðunarmeistarinn og áhrifavaldurinn Heiðdís Rós Reynisdóttir fór í sólina í Dubai.
Sól í Kaliforníu!
Listræni stjórnandinn Júnía Lín Jónsdóttir naut lífsins í Kaliforníu.
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗