Allt að 66% verðmunur á bökunarvörum

Mikill verðmunur getur verið á milli verslana.

Mikill verðmunur getur verið á milli verslana. Ljósmynd/Colourbox

Verð á sykri, hveiti og nokkrum súkkulaðivörum hefur lækkað milli ára en egg og mjólkurvörur hafa hækkað frá nóvember 2024.

Mikill verðmunur getur verið á milli verslana, eða 11 til 66%, á algengum bakstursvörum sem Verðlagseftirlit ASÍ skoðaði, að því er kemur fram í tilkynningu.

Fram kemur að verðmunur geti einnig verið mikill innan verslana, á bilinu 9 til 29% á sambærilegum vörum. Neytendur geti því sparað mikið með því að velja ódýrara vörumerki innan sömu verslunar.

Sykur lækkar í verði annað árið í röð

„Verðþróun þurr- og bökunarvöru er misjöfn milli ára. Nokkrar vörur sem hækkuðu mikið frá nóvember 2024 til nóvember 2025 lækka nú í verði. Lækkunina má m.a. rekja til sterkara gengis krónunnar og lægra verðs á hrávörum á borð við sykur og kakó en heimsmarkaðsverð á kakói er um helmingi lægra en það var í lok árs 2024,” segir í tilkynningunni.

Þar segir einnig að verð á vörum frá Nóa Síríus hafi lækkað milli ára. Þannig hafi verð á Nóa súkkulaðiperlum, Konsum suðusúkkulaði og Nóa Síríus rjómasúkkulaðidropum lækkað um 11 til 13% milli ára. Verðið er þó enn um 9 til 21% hærra en í nóvember 2024.

Lindu suðusúkkulaði hefur hækkað um 30% frá 2024 og Freyju suðusúkkulaðidropar hækkuðu um 17% frá 2024–2025 en verðið hefur staðið óbreytt sl. ár.

Meðalverð á hveiti hefur lítið breyst á tímabilinu en sykur lækkar annað árið í röð. DanSukker-sykur hefur lækkað um 25% á tveimur árum og Euroshopper-strásykur um 18%. Egg hafa aftur á móti hækkað um 12–14% frá nóvember 2024 og rjómi, smjör og mjólk um 10–23%.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅