Vill burt frá Ítalíu sem fyrst - Frúin tjáir sig um málið

Framtíð Kevin De Bruyne hjá Napoli er í óvissu eftir að eiginkona hans, Michelle, greindi frá því að fjölskyldan vilji snúa aftur til Belgíu.

De Bruyne, sem er 35 ára, gekk til liðs við Napoli sumarið 2025 eftir afar farsælan feril hjá Manchester City. Dvölin á Ítalíu hefur hins vegar ekki gengið samkvæmt væntingum.

Michelle ræddi framtíð fjölskyldunnar í viðtali við belgíska tímaritið NINA.

„Við tölum sífellt oftar um að flytja aftur til Limburg. Því fyrr sem við komum þangað, því betra,“ sagði hún.

Hún segir lífið í Napólí erfitt þar sem fjölskyldan geti vart farið út án þess að vekja athygli.

„Í Manchester gátum við farið út án þess að nokkur tæki myndir. Það er ómögulegt í Napólí.“

De Bruyne hefur glímt við meiðsli og fregnir hafa borist af ósætti innan leikmannahópsins.

Samningur Belganum við Napoli rennur út næsta sumar og því gæti hann yfirgefið félagið að tímabilinu loknu.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅