Mikill verðmunur fyrir jólabaksturinn – Hér er oftast lægsta verðið

Mikill verðmunur er á algengum bökunarvörum milli matvöruverslana hér á landi og getur munurinn numið allt að 66 prósentum. Þá geta neytendur sparað töluverðar fjárhæðir með því einu að velja ódýrara vörumerki innan sömu verslunar.

Þetta kemur fram í nýrri úttekt Verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands (ASÍ), þar sem verð á algengum bökunarvörum var kannað dagana 3. til 8. nóvember.

Prís oftast með lægsta verðið

Samkvæmt úttektinni er Prís oftast með lægsta verðið á þeim vörum sem bornar voru saman. Verslunin var ódýrust á níu af sextán vörum sem fengust í fleiri en einni verslun. Bónus var með lægsta verðið á fjórum vörum, Krónan á tveimur og Fjarðarkaup á einni.

Verðmunurinn er í sumum tilfellum verulegur. Þannig kosta Nóa súkkulaðiperlur 476 krónur í Fjarðarkaupum en 789 krónur í Krambúðinni. Munurinn nemur 313 krónum, eða tæplega 66 prósentum.

Þá er Katla púðursykur tæplega 60 prósentum dýrari í Krambúðinni en í Prís og Nesbú hamingjuegg um 42 prósentum dýrari. Minni munur er á Kornax-hveiti, eða um 11 prósent milli lægsta og hæsta verðs.

Engin ein verslun reyndist þó vera með lægsta verðið á öllum vörunum.

Súkkulaði lækkar en egg og mjólkurvörur hækka

Úttekt ASÍ leiðir jafnframt í ljós að verðþróun bökunarvara hefur verið afar misjöfn undanfarin tvö ár.

Verð á nokkrum súkkulaðivörum frá Nóa Síríus hefur lækkað um 11 til 13 prósent á síðasta ári. Þrátt fyrir það eru vörurnar enn 9 til 21 prósenti dýrari en í nóvember 2024.

Sykur hefur einnig lækkað í verði annað árið í röð. DanSukker-sykur hefur lækkað um 25 prósent á tveimur árum og Euroshopper-strásykur um 18 prósent.

Önnur þróun hefur orðið á eggjum og mjólkurvörum. Egg hafa hækkað um 12 til 14 prósent frá nóvember 2024 og verð á rjóma, smjöri og mjólk hefur hækkað um 10 til 23 prósent á sama tímabili.

ASÍ bendir á að lækkun á verði sumra vara megi meðal annars rekja til sterkara gengis krónunnar og lækkunar á heimsmarkaðsverði hrávara á borð við sykur og kakó.

Hægt að spara án þess að skipta um verslun

Verðlagseftirlitið bendir einnig á að töluverður sparnaður geti falist í því að velja ódýrari vörumerki innan sömu verslunar.

Í Bónus er Euroshopper-hveiti til að mynda rúmlega 26 prósentum ódýrara en Kornax-hveiti, sem jafngildir um 96 krónum. Í Krónunni er First Price-hveiti rúmlega 21 prósenti ódýrara en Kornax.

Svipaða sögu er að segja af súkkulaði. Í Krónunni kostar kílóið af Cachet-bökunarsúkkulaði 2.130 krónur en Freyju suðusúkkulaði 2.995 krónur. Þar munar 865 krónum á kílóið, eða tæplega 29 prósentum miðað við dýrari vöruna.

ASÍ hvetur neytendur til að bera saman verð áður en haldið er í innkaup og bendir á að nýjustu verðupplýsingar megi nálgast á vefnum Verðlagseftirlit.is.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅