106 þúsund tonn veidd í október

Hagstofan hefur birt nýjar tölur um fiskafla í október.

Hagstofan hefur birt nýjar tölur um fiskafla í október. mbl.is/Börkur Kjartansson

Landaður fiskafli í október 2026 var 106 þúsund tonn, fimmtungi meira en í október í fyrra samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar.

„Botnfiskafli var rúm 30 þúsund tonn sem er 18% minni afli en í október 2025. Uppsjávarafli var tæp 75 þúsund tonn, 51% meiri afli en ári fyrr, aðallega vegna meiri síldarafla,“ segir í færslu stofnunarinnar.

„Á 12 mánaða tímabili, frá nóvember 2025 til október 2026, var landað 1.015 þúsund tonnum sem er 2% minni afli en á sama tímabili ári fyrr.“

Uppsjávarafli er sagður hafa verið jafn mikill á báðum tímabilum.

„Botnfiskafli dróst saman um 5% á milli tímabila og flatfiskafli dróst saman um 8%.“

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅