Sá besti tárvotur: Pabbi hefur legið á sjúkrahúsi
Rory McIlroy táraðist eftir að hafa tryggt sér sigur í Race to Dubai í áttunda sinn og jafnaði þar með met Colins Montgomerie yfir þá sem oftast hafa lokið tímabilinu sem besti kylfingur Evrópu.
Norður-Írinn lék lokahringinn á 67 höggum og hafnaði í öðru sæti á DP World Tour Championship, fimm höggum á eftir Englendingnum Tyrrell Hatton, og komst þar með upp fyrir Spánverjann Eugenio Chacarra á stigalista tímabilsins.
McIlroy komst við þegar hann ræddi um bata föður síns, Gerrys, eftir stóra skurðaðgerð.
„Hann hefur legið á sjúkrahúsi síðustu tvo mánuði,“ sagði hann í samtali við DP World Tour. „Hann sagði við mig: ‚Farðu og vinndu keppnina í Dúbaí.‘“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗