Foo Fighters á leið til Íslands
Rokkhljómsveitin Foo Fighters er væntanleg til Íslands næsta sumar og heldur tónleika í Nýju-Laugardalshöll þann 9. júní. Þetta verða fyrstu tónleikarnir á Evrópulegg tónleikaraðarinnar Take Cover Tour. Sænska rokksveitin The Hives hitar upp.
Miðasala á tónleikana hefst á föstudag klukkan 10 en póstlistaforsala tónleikahaldarans Senu Live fer fram á fimmtudag klukkan 10. Eingöngu er selt í stæði og eru tvö verðsvæði í boði: miðar á A-svæði kosta 33.990 krónur og miðar á B-svæði kosta 23.990 krónur. Búist er við mikilli eftirspurn eftir miðum og því er hægt að kaupa að hámarki sex miða í einu, segir í tilkynningu.
Þetta verður í þriðja sinn sem Foo Fighters heldur tónleika á Íslandi. Fyrsta skiptið var árið 2003 en þá varð frægt þegar Dave Grohl og félagar drógu hina óþekktu sveit Nilfisk frá Stokkseyri með sér á svið. Tveimur árum síðar hélt Foo Fighters stórtónleika í Egilshöll með Queens of the Stone Age.
Foo Fighters er ein stærsta rokksveit heims og hefur fengið mikið lof fyrir tónleika sína að undanförnu. „Þrjár klukkustundir liðu á augabragði í linnulausri syrpu af smellum á yfirsnúningi,“ sagði til að mynda í The Times.
Foo Fighters lauk nýverið Norður-Ameríkuhluta Take Cover-tónleikaferðarinnar 2026. Þar bauð sveitin upp á „þrjár klukkustundir af rokkbrjálæði og fögnuði“, eins og The New York Times orðaði það, fyrir stærstu áhorfendahópa sína til þessa í meðal annars Toronto, Chicago, Philadelphia og Washington DC.
Þriggja tíma tónleikar
Sveitin er nú á tónleikaferð um Ástralíu og Nýja-Sjáland. Sydney Morning Herald lofaði „hráa orkuna og ákefðina“ á tónleikunum í Sydney. Þar flutti sveitin einnig hið sjaldheyrða „Ballad of the Beaconsfield Miners“ til minningar um námumanninn Todd Russell frá Beaconsfield, sama dag og hann lést.
Meðlimir sveitarinnar í dag eru Dave Grohl, Nate Mendel, Chris Shiflett, Pat Smear, Rami Jaffee og Ilan Rubin. Búast má við að sama þema verði ráðandi á Íslandi næsta sumar og á öðrum tónleikum Foo Fighters: „Þriggja tíma tónleikar hafa einkennt ferðina, þar sem klassísk Foo Fighters-lög, sjaldheyrðari perlur og óvænt atriði mætast,“ eins og segir í tilkynningu.
Tónleikar Foo Fighters í Evrópu og Bretlandi 2027
Júní
Mið. 9. júní – Reykjavík, Ísland – Nýja-Laugardalshöll
Lau. 12. júní – Helsinki, Finnland – Olympic Stadium
Þri. 15. júní – Kaupmannahöfn, Danmörk – Valbyparken
Fim. 17. júní – Düsseldorf, Þýskaland – Merkur Spiel-Arena
Lau. 19. júní – Werchter, Belgía – Werchter Parklife
Þri. 22. júní – Bern, Sviss – Stadion Wankdorf
Fös. 25. júní – Flórens, Ítalía – OPEL Firenze Rocks
Sun. 27. júní – Zagreb, Króatía – INmusic Festival
Mið. 30. júní – Sofía, Búlgaría – Vasil Levski Stadium
Júlí
Fös. 2. júlí – Aþena, Grikkland – Ejekt Festival
September
Fim. 9. sept. – London, Bretland – Wembley Stadium
Lau. 11. sept. – London, Bretland – Wembley Stadium
Þri. 14. sept. – Darlington, Bretland – The Darlington Arena
Fim. 16. sept. – Edinborg, Bretland – Scottish Gas Murrayfield Stadium
Lau. 18. sept. – Dublin, Írland – Croke Park
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

