Vill að vændiskaup hætti að njóta „sérmeðferðar“

Ráðherrann vísar í pistli sínum til umfangs vændisstarfsemi hér á landi. Í sérstakri aðgerð lögreglu árið 2025 hafi fundist 460 virkar vændisauglýsingar á einni vefsíðu. Ljósmynd/Colourbox

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra vill að vændiskaup hætti að njóta þeirrar sérmeðferðar innan réttarkerfisins að hægt sé að ljúka málum með sektargreiðslu.

Hún segir mikilvægt að slík brot hljóti meðferð í samræmi við alvarleika þeirra og að spornað verði gegn þeirri umfangsmiklu vændisstarfsemi sem viðgangist hér á landi.

Þetta kemur fram í pistli sem ráðherrann birti á Facebook-síðu sinni í morgun, þar sem hún rökstyður frumvarp sitt um hertar refsingar við vændiskaupum.

Í frumvarpinu, sem lagt hefur verið fram á Alþingi, er lagt til að sektir verði afnumdar sem refsing við vændiskaupum. Þannig verði ekki lengur hægt að ljúka slíkum málum með lögreglustjórasekt, heldur verði gefin út ákæra og málin fari fyrir dómstóla.

„Ég er því einfaldlega að leggja til að vændiskaup hætti að njóta sérmeðferðar,“ segir Þorbjörg.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Sér ekki fyrir sér fangelsisvist

Vændiskaup hafa verið refsiverð á Íslandi frá árinu 2009. Samkvæmt upplýsingum í greinargerð með frumvarpinu hefur fyrstu brotum að jafnaði verið lokið með 200 þúsund króna lögreglustjórasekt.

Ráðherrann segir það ekki endurspegla alvarleika brotanna að hægt sé að ljúka málum með því einu að greiða sekt. Markmiðið með breytingunni sé þó ekki að vændiskaupendur fari almennt í fangelsi.

„Markmiðið er vitaskuld ekki einhver fangelsisvist í sjálfu sér, enda sé ég fyrir mér að þessum brotum verði almennt lokið með skilorðsbundnum dómum.“

Þorbjörg bendir jafnframt á að sakamál sem fari fyrir dómstóla séu yfirleitt opinber og að nöfn sakborninga geti því orðið opinber.

Hún segir þó að undantekningar séu gerðar þegar nafnbirting geranda gæti leitt til þess að þolandi yrði nafngreindur, meðal annars vegna tengsla þeirra á milli.

Slíkar takmarkanir séu til þess að vernda hagsmuni þolenda en ekki gerenda.

Hundruð kvenna auglýstar í vændi

Ráðherrann vísar í pistli sínum til umfangs vændisstarfsemi hér á landi. Í sérstakri aðgerð lögreglu árið 2025 hafi fundist 460 virkar vændisauglýsingar á einni vefsíðu.

Hún rifjar einnig upp nýlega umfjöllun Kveiks þar sem fram kom að hundruð kvenna væru auglýstar í vændi hér á landi. Þar hafi meðal annars verið sýnt hvernig vændiskaupendur streymdu inn og út af gististað í Reykjavík.

Þá hafi 36 hugsanlegir þolendur mansals fundist í umfangsmikilli alþjóðlegri lögregluaðgerð árið 2025. Mikill meirihluti þeirra hafi verið seldur í vændi og meirihluti hópsins verið frá Rúmeníu, þótt fólkið hafi verið af ýmsum þjóðernum.

„Vændi er þess vegna ekki einhver fjarlægur veruleiki. Þetta er að gerast hér á Íslandi,“ segir ráðherrann.

Segir vændi og mansal nátengt

Þorbjörg leggur áherslu á að vændi og mansal séu nátengd og að ekki verði fjallað um vændi án þess að horfa til jafnréttis kynjanna.

Hún vísar meðal annars til rannsóknar Stígamóta frá árinu 2022, þar sem fram komi að vændi sé neyðarráð fólks í erfiðri félagslegri stöðu og að afleiðingar þess fyrir líkamlega og andlega líðan geti verið alvarlegar og langvarandi.

Að sögn ráðherrans geti aðstæður þeirra sem selja vændi þróast þannig að aðrir hagnýti sér varnarleysi þeirra, meðal annars með því að bjóða húsnæði og öryggisgæslu. Við slíkar aðstæður geti einstaklingar misst sjálfstæði sitt og ákvörðunarvald.

Hún segir að þótt ekki sé um slíkar aðstæður að ræða í öllum tilvikum verði að horfa til þess sem almennt einkenni vændismarkaðinn fremur en undantekninga.

Ráðherrann segir eftirspurn eftir vændi gera starfsemina arðbæra og skapa grundvöll fyrir kynferðislegri misneytingu kvenna og stúlkna.

Vændi sé auk þess í mörgum tilvikum hluti af skipulagðri brotastarfsemi. Með því að draga úr eftirspurninni sé því jafnframt hægt að vinna gegn þeim hagnaði sem haldi slíkri starfsemi gangandi.

Hafnar gagnrýni um að starfsemin færist undir yfirborðið

Þorbjörg fjallar einnig um þau sjónarmið að hertar refsingar geti orðið til þess að vændisstarfsemi færist enn frekar undir yfirborðið og öryggi þeirra sem selja vændi versni.

Hún bendir á að starfsemin fari nú þegar að mestu fram með leynd og að kaupendur vilji almennt ekki að vændiskaup þeirra verði opinber.

Því telji hún ekki að hertar refsingar breyti þeirri staðreynd að vændiskaupendur vilji halda háttsemi sinni leyndri.

Þá vísar hún til ummæla Margrétar Valdimarsdóttur afbrotafræðings um að harðari refsingar dragi úr eftirspurn eftir vændi og að minna mansal sé þar sem eftirspurnin er minni.

Ráðherrann segir nauðsynlegt að beina sjónum að þeim sem haldi eftirspurninni gangandi. Með frumvarpinu sé verið að senda skýr skilaboð um að vændiskaup séu alvarleg brot sem réttarkerfið þurfi að taka á sem slíkum.

„Ísland á ekki að vera þekkt sem sölustaður vændis,“ segir Þorbjörg að lokum.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅