Jólasánur í stað jólapakka

Ari Steinn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Heitirpottar.is, segir fólk í vaxandi mæli kaupa sánahús í jólagjöf. Hjá fyrirtækinu séu slíkar gjafir einfaldlega kallaðar jólasánur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Það komast ekki allar jólagjafir undir jólatréð. Sumar þurfa pláss á pallinum og rafmagnstengingu en geta í staðinn orðið að samkomustað fjölskyldunnar um ókomin ár. Ari Steinn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Heitirpottar.is, segir fólk í vaxandi mæli kaupa sánahús í jólagjöf. Hjá fyrirtækinu séu slíkar gjafir einfaldlega kallaðar jólasánur.

„Fólk er meira að segja farið að kaupa sánahús sem jólagjöf. Þetta er gjöf sem öll fjölskyldan getur notið allan veturinn, ekki bara á aðfangadag. Hún gefur og gefur, ár eftir ár, og vinirnir sem koma í heimsókn fá líka að njóta hennar,“ segir Ari Steinn.

Sánahús sem jólagjöf er gjöf sem öll fjölskyldan getur notið allan veturinn, ekki bara á aðfangadag. Hún gefur og gefur, ár eftir ár, Ljósmynd/Aðsend

Kuldinn kallar á hitann

Vinsældir sánahúsanna hafa skapað nýjan annatíma hjá Heitirpottar.is, að sögn Ara Steins.

„Í pottabransanum hefur alltaf verið mest að gera á vorin þegar fólk kaupir heitan pott fyrir sumarið. Sánurnar hafa verið vinsælar allt árið síðustu ár en við sjáum að eftirspurnin eykst þegar fer að kólna.

Þá sækist fólk eftir því að geta farið í heita og góða sánu og vill koma henni upp áður en mesta frostið skellur á. Margir vilja hafa allt tilbúið til að njóta með fjölskyldunni um jólin og við erum að afhenda mikið af jólasánum.“

Það þarf hvorki stóran garð né víðáttumikinn pall til að koma sánahúsi fyrir því til eru sánahús af öllum stærðum og gerðum hjá Heitirpottar.is. Ljósmynd/Aðsend

Frá tveimur og upp í tuttugu

Það þarf hvorki stóran garð né víðáttumikinn pall til að koma sánahúsi fyrir. Ari Steinn segir framboðið af útisánum ná frá nettum tveggja manna klefum upp í hús sem rúma tuttugu manns. Minni gerðirnar geti meðal annars hentað á svalir, eftir aðstæðum.

„Við erum með alls konar stærðir og gerðir. Þetta getur farið á svalir eða á pall og það eru mismunandi lausnir í boði fyrir undirstöðurnar. Þetta er því alls ekki eingöngu fyrir fólk sem á stóran garð. Við sjáum þó milli ára að fólk er hægt og rólega að velja stærri og stærri sánur hjá okkur.“

Í stærri húsunum gefst kostur á fjölbreyttari aðstöðu. Hægt er að hafa forrými þar sem fólk getur setið á milli lota, geymt föt og handklæði og átt notalega stund í skjóli fyrir veðrinu. Þá er hægt að laga útfærsluna að þörfum heimilisins, meðal annars með sturtu og gólfhita.

„Það er hægt að fá sturtu í klefana og bæta við gólfhita þannig að flísarnar taki hlýlega á móti manni þegar stigið er inn úr kuldanum.“

Eftirspurn eftir sánum eykst þegar fer að kólna og margir vilja hafa sánuna tilbúna til að njóta með fjölskyldunni um jólin. Ljósmynd/Aðsend

Gjöfin kemur samsett

Jólasánurnar eru fullbúnar útisánur og því fylgir þeim ekki samsetningarvinna heima fyrir. Undirstöður og tengingar þurfa þó að vera tilbúnar áður en hægt er að taka þær í notkun.

Ari Steinn segir áherslu lagða á að viðskiptavinir sjái skýrt hvað fylgi húsunum og hvað bætist við verðið.

„Þegar fólk skoðar heimasíðuna okkar er sánaofn, lýsing, samsetning og allur frágangur innifalin í verðinu sem þar er birt. Það sem bætist við er flutningurinn og að tengja húsið í samband. Verðin eru aðgengileg á heimasíðunni og fólk sér hvað er innifalið.“

Hann segir þetta eiga sinn þátt í vinsældunum. Þegar búið sé að velja húsið taki fyrirtækið við vinnunni við að gera það tilbúið.

„Flestar okkar vörur og þjónustan í kringum þær byggjast á því að fólk geti slakað á. Það verslar hjá okkur og fær þetta tilbúið. Við sjáum um vinnuna og hausverkinn svo fólk geti farið að njóta.“

Jólasánurnar eru fullbúnar útisánur og því fylgir þeim ekki samsetningarvinna heima fyrir. Undirstöður og tengingar þurfa þó að vera tilbúnar áður en hægt er að taka þær í notkun. Ljósmynd/Aðsend

Heitirpottar.is er opið alla daga vikunnar yfir veturinn og upplýsingar um gerðir, útfærslur og verð eru á heimasíðu fyrirtækisins. Fyrir Ara Stein er þó helsti kostur jólasánunnar sá að notkunin heldur áfram löngu eftir að jólaskrautið hefur verið tekið niður.

„Þetta er gjöf fyrir alla fjölskylduna og líka vini sem koma í heimsókn. Fólk getur notið hennar allan veturinn og ár eftir ár. Það er gott að geta farið í hitann þegar kalt er úti. Svo er þetta líka skemmtileg leið til að koma einhverjum á óvart með jólagjöf sem öll fjölskyldan fær að njóta.“

Heitirpottar.is er opið alla daga vikunnar yfir veturinn og upplýsingar um gerðir, útfærslur og verð eru á heimasíðu fyrirtækisins. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅