Foo Fighters kemur til Íslands í sumar
Fókus
Mánudaginn 16. nóvember 2026 09:07
Dave Grohl og félagar í Foo Fighers eru á leið til Íslands. Mynd/Getty
Ein stærsta rokkhljómsveit heims, Foo Fighters, hefur tónleikaferð sína TAKE COVER TOUR 2027 á Íslandi. Tónleikarnir fara fram í Nýju-Laugardalshöll þann 9. júní. The Hives hita upp og fleiri upphitunaratriði verða tilkynnt síðar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu Live.
Ferðinni lýkur á Croke Park í Dublin 18. september. Meðal viðkomustaða er Wembley Stadium í London, þar sem sveitin leikur tvö kvöld, 9. og 11. september.
Eingöngu er selt í stæði og eru tvö verðsvæði í boði:
- A-svæði: 33.990 kr.
- B-svæði: 23.990 kr.
Búist er við mikilli eftirspurn eftir miðum og því er hægt að kaupa að hámarki 6 miða í einu, að því er fram kemur í tilkynningunni.
Foo Fighters luku nýverið Norður-Ameríkuhluta TAKE COVER-tónleikaferðarinnar 2026. Þar bauð sveitin upp á „þrjár klukkustundir af rokkbrjálæði og fögnuði“, eins og The New York Times orðaði það, fyrir stærstu áhorfendahópa sína til þessa í meðal annars Toronto, Chicago, Philadelphia og Washington DC. Sveitin er nú á tónleikaferð um Ástralíu og Nýja-Sjáland.
Sjá einnig:
Brotnaði niður á minningartónleikum og aðdéndur grétu með honum
Þriggja tíma tónleikar hafa einkennt ferðina, þar sem klassísk Foo Fighters-lög, sjaldheyrðari perlur og óvænt atriði mætast.
Sænska rokksveitin The Hives er þekkt fyrir hrátt bílskúrsrokk og tryllta sviðsframkomu. Með hinn litríka Howlin' Pelle Almqvist í fararbroddi hefur sveitin um árabil heillað rokkunnendur um allan heim.
Meðal þekktustu laga sveitarinnar eru „Hate to Say I Told You So“, „Main Offender“, „Walk Idiot Walk“ og „Tick Tick Boom“. Árið 2025 sendi sveitin frá sér plötuna „The Hives Forever Forever The Hives“.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗