Íslendingar beina spjótum sínum að Apple – „Við eigum ekki að þurfa að setja á alarm“

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Mánudaginn 16. nóvember 2026 09:15

Halldór Benjamín Þorbergsson.

Íslendingar eru hvattir til að taka þátt í undirskriftasöfnun þar sem skorað er á tæknirisann Apple að bjóða loksins upp á íslenskt notendaviðmót í iPhone-símum og Mac-tölvum.

Átakið hefst í dag, á degi íslenskrar tungu, og standa Almannarómur og Íslandsstofa að því í samstarfi við stjórnvöld.

Halldór Benjamín Þorbergsson, stjórnarformaður Almannaróms, fjallar um málið í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Hann bendir á að Apple hafi áður verið í fararbroddi þegar kom að íslensku tölvuviðmóti en nú sé öldin önnur.

„Fyrirtækið sem áður skar sig úr fyrir íslenskt viðmót hefur nú þveröfuga sérstöðu og er nánast eina stóra tæknifyrirtækið í dag sem býður ekki upp á íslensku í lausnum sínum.“

Halldór rifjar upp að á fyrstu árum Macintosh-tölvanna hafi verið hægt að breyta stýrikerfinu þannig að það birtist á íslensku. Apple-umboðið á Íslandi hafi lengi séð um þýðingarnar en árið 2007 hafi Apple lokað fyrir slíkar viðbætur.

„Tungumál rata ekki af sjálfu sér inn í tækni. Það þarf að hafa fyrir því að koma þeim þangað og það höfum við Íslendingar gert í hartnær hálfa öld.“

Baráttan fyrir íslensku stöfunum

Halldór rifjar einnig upp hvernig Íslendingar þurftu á sínum tíma að berjast fyrir því að séríslenskir stafir fengju pláss í tölvukerfum. Undir lok áttunda áratugarins hafi íslenskir tæknimenn meðal annars þurft að breyta skjám og prenturum svo þeir réðu við stafina þ, ð, æ og ö.

Árið 1988 hafi IBM ætlað að setja nýtt tölvukerfi á markað án þessara stafa. Íslenskur starfsmaður fyrirtækisins, Örn Kaldalóns, hafi þá skrifað stjórnendum bréf þar sem hann sýndi fram á hversu fráleitt þetta væri með því að fjarlægja stafina w, x, y og z úr enskum texta. Bréfið hafi skilað árangri og íslensku stafirnir fengið að vera með.

Fjórum árum síðar hafi Tyrkir lagt til að íslensku stafirnir fjórir vikju úr alþjóðlegri stafatöflu fyrir lyklaborð. Íslensk stjórnvöld hafi gripið inn í og tillagan að lokum verið felld.

„Öðruvísi mér áður brá“

Halldór segir þessa sögu sýna hversu mikilvægt sé að Íslendingar standi vörð um tungumálið í tækninni. Hann telur tímabært að Apple taki við sér og grípur til orðaleiks til að undirstrika mál sitt.

„Öðruvísi mér áður brá, eða &%ruvísi mér á$ur brá, eins og ég neyddist líklega til að skrifa ef ekki væri fyrir öfluga hagsmunabaráttu okkar fyrir íslensku í tækni í gegnum áratugina.“

Grein sína endar Halldór á þessum orðum:

Við eigum ekki að þurfa að „setja á alarm“ eða „kveikja á flashlight“. Við hvetjum alla til að skrifa undir áskorunina til Apple á www.tryggjumislensku.is og vonum að bráðlega verði hægt að nota iPhone og Macbook á íslensku.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅