Klopp: Héldum að ástandið gæti ekki versnað

Jürgen Klopp er ekki sáttur við Infantino og félaga.

Jürgen Klopp er ekki sáttur við Infantino og félaga. AFP/Pedja Milosavljevic

Jürgen Klopp, landsliðsþjálfari Þýskalands í fótbolta, hefur kallað eftir breytingum á forystu FIFA og gagnrýnt forsetatíð Giannis Infantino.

„Eftir Sepp Blatter héldum við að ástandið gæti ekki versnað, en svo tókst okkur það samt,“ sagði Klopp á blaðamannafundi fyrir leik Þýskalands gegn Hollandi í Þjóðadeildinni.

„Það er vissulega til fólk sem ber hag knattspyrnunnar fyrir brjósti og hefur enga fjárhagslega hagsmuni. Ef einhver úr þeim hópi tæki við væri það svo sannarlega til bóta.“

Klopp nefndi Infantino ekki á nafn. Forseti FIFA, sem tók við af Blatter árið 2016, hyggst sækjast eftir endurkjöri í mars.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅