Þessu áttu að hætta að gera fyrir flug
Það að stíga upp í flugvél fylgir mikill undirbúningur, allt frá því að finna til vegabréfið yfir í að fá sér að borða og fara á klósettið. Það eru hins vegar ekki allir sammála um það hvort að fólk eigi að fara á klósettið fyrir flug, sérstaklega ef fólk þarf ekki að pissa.
Á ferðavefnum Travel and Leisure er farið yfir af hverju fólk ætti að hætta því að taka öryggispiss fyrir flug. Þar er greint frá könnun sem ferðatryggingafélag, sem sérhæfir sig í tryggingum fyrir fólk með heilsufarsvandamál lét gera. Þar kom fram að nærri 73 prósent breskra ferðalanga, 63 prósent karla og 81 prósent kvenna, fara á klósettið fyrir flug, jafnvel þótt þeim finnist þeir ekki þurfa þess.
Rúmlega þrír af hverjum fjórum eða 76 prósent ferðalanga 55 ára og eldri fara á klósetti til öryggis fyrir flug. Í hópnum 18 til 24 ára voru það 62 prósent sem fóru á klósettið til öryggis. Auk þess sögðust 59 prósent ferðalanga forðast að drekka vökva til að þurfa ekki að nota klósettið um borð í flugvélinni.
Gerir meira ógagn en gagn
Það að fara á klósettið til öryggis gæti það gert meira ógagn en gagn.
„Kvíði magnar líkamlegar tilfinningar verulega upp. Þegar óvíst virðist hvort fólk komist á klósett við að ganga um borð, í ókyrrð eða þegar það er kveikt á sætisbeltaljósinu fylgist það nánar með þvagblöðrunni. Tilfinning sem það myndi varla taka eftir heima getur skyndilega virst knýjandi,“ sagði dr. Grigorios Kyriazis, sérfræðingur í þvagfæraskurðlækningu.
Að sögn Kyriazis er ekki skaðlegt að fara stöku sinnum á klósettið til öryggis, en að fara ítrekað þegar mjög lítið er í þvagblöðrunni getur hins vegar orðið að viðverandi vandamáli. Einnig er varað við því að forðast að drekka vökva á ferðalagi. Það getur meðal annars valdið óþægindum á borð við höfuðverk, svima, þreytu, hægðatregðu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
